Dagur Sigurðsson á óvart með því að byrja með 4-2 vörn, þar sem Patrick Groetzki tók stórskyttuna Mikkel Hansen úr umferð.
Þetta virtist koma Dönunum í opna skjöldu en sóknarleikur þeirra gekk brösuglega framan af. Þjóðverjar komust í 1-3 en Danir náðu fljótlega tökum á sóknarleik sínum og jöfnuðu metin í 3-3 og svo aftur í 7-7 um miðjan fyrri hálfleik.
Jafnt á flestum tölum það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en aldrei munaði meira en einu marki á liðunum.
Sóknarleikur Dana batnaði sem áður sagði til mikilla muna og gekk svo vel að Dagur breytti vörn. Þjóðverjum gekk illa að koma böndum á Hansen sem fór á kostum í fyrri hálfleiknum, skoraði þrjú mörk og átti fjöldan allan af stoðsendingum.

Í stöðunni 21-21 skoraði þýska liðið þrjú mörk í röð og útlitið var dökkt fyrir Guðmund og lærisveina hans.
Þegar staðan var 21-24 misstu Þjóðverjar mann af velli og það nýttu Danir sér, opnuðu vinstra hornið tvisvar fyrir Anders Eggert og hann minnkaði muninn í 23-24.
Þá kom fínn kafli hjá Þjóðverjum sem skoruðu þrjú mörk gegn einu og náðu aftur þriggja marka forskoti, 24-27, þegar níu mínútur voru eftir.
En sóknarleikur Dana hrökk í gang á besta tíma og munaði þar miklu um innkomu Bo Spellerberg, leikstjórnandans reynda.
Danska liðið jafnaði í 28-28 og aftur í 29-29 þegar Hansen skoraði sitt sjötta mark.

Það var svo hornamaðurinn Hans Lindberg sem tryggði Dönum stig með því að jafna leikinn í 30-30 af vítapunktinum. René Toft Hansen fiskaði vítið eftir frábæra línusendingu frá Spellerberg.
Þýskaland fékk síðustu sóknina - sem dróst verulega á langinn - en danska vörnin stóð vel og varði tvö skot frá Jens Schöngarth.
Niðurstaðan 30-30 í mögnuðum leik tveggja frábærra liða.
Þjóðverjar eru nú með fimm stig á toppi D-riðils og eru komnir langt með að tryggja sér efsta sæti hans. Danir koma næstir með þrjú stig en þeir eiga tvo erfiða leiki eftir, gegn Póllandi og Rússlandi.
Weinhold var markahæstur í liði Þýskalands með átta mörk en hornamennirnir Groetzki og Uwe Gensheimer komu næstir með sex mörk hvor. Heinevetter var með sjö skot varin og Carsten Lichtlein sex.
Hansen og Mads Christiansen skoruðu báðir sex mörk fyrir Dani, en Eggert kom næstur með fimm. Nicklas Landin varði 11 skot í markinu og Jannick Green sex.