Körfubolti

Stöðvið prentvélarnar: Knicks vann leik

Carmelo Anthony.
Carmelo Anthony. vísir/getty
Eftir sextán leikja taphrinu kom loksins að því að leikmenn NY Knicks gætu brosað. Svo mikill var léttirinn að plötusnúðurinn spilaði "I feel good" með James Brown í leikslok.

Carmelo Anthony steig upp og skoraði 24 stig í sigrinum á New Orleans. Fyrsti sigur liðsins síðan 12. desember á síðasta ári. Þarf vart að taka fram að þetta er versta taphrina í sögu Knicks.

Engu að síður er Knicks enn með lélegasta árangur deildarinnar, 6-36.

Úrslit:

Charlotte-Minnesota  105-80

Washington-Philadelphia  111-76

Atlanta-Detroit  93-82

LA Clippers-Boston  102-93

Golden State-Denver  122-79

Memphis-Dallas  95-103

Houston-Indiana  110-98

NY Knicks-New Orleans  99-92

Cleveland-Chicago  108-94

Milwaukee-Toronto  89-92

Portland-Sacramento  98-94

Phoenix-LA Lakers  115-100

Staðan í NBA-deildinni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×