Danir klófestu fimmta sætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2015 17:46 Guðmundur Guðmundsson þjálfar danska liðið. Vísir/Eva Björk
Danmörk vann Króatíu, 28-24, í leik um fimmta sætið á HM í handbolta í Katar í dag. Danir leiddu allan tímann en Króatar gerðu harða atlögu að forystu þeirra á lokamínútum leiksins. Óljóst er hversu mikilvægt það var að landa fimmta sætinu þar sem Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur ekki enn gefið út hvort að sama fyrirkomulag verði á undankeppni ÓL 2016 og síðustu ár.Sjá einnig: Guðmundur: Vitum ekki hvað við erum að spila um Danmörk tapaði aðeins einum leik allt mótið en það var fyrir Spánverjum í 8-liða úrslitum keppninnar. Liðið gerði þó tvö jafntefli í riðlakeppninni. Eftir jafnar upphafsmínútur í dag tóku Danir yfirhöndina með því að skora fjögur mörk í röð og breyta stöðunni úr 4-4 í 8-4. Króatar virtust fremur áhugalausir um leikinn en staðan að loknum fyrri hálfleik var 15-11. En í síðari hálfleik leit út fyrir að Danir væru ekki með hugann við leikinn. Liðið tapaði óvenjumörgum boltum og Króatar voru búnir að minnka muninn í tvö mörk, 18-16, áður en langt var um liðið. Danir vöknuðu þá til lífsins áður en Króatar náðu enn og aftur að koma til baka. Þeir síðarnefndu fengu tækifæri til að minnka muninn í eitt mark þegar um tíu mínútur voru eftir en þá kom Niklas Landin í mark Dana og sá til að það kom aldrei til þess. Hann var frábær þessar síðustu tíu mínútur leiksins. Mikkel Hansen átti stórleik í sókninni og skoraði átta glæsileg mörk fyrir danska liðið. Mads Christiansen kom næstur með þrjú mörk.
HM 2015 í Katar Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira