Körfubolti

Collison fær milljarð fyrir tveggja ára samning

Nick Collison.
Nick Collison. vísir/getty
Nick Collison er ekkert á förum því hann er búinn að skrifa undir nýjan samning við Oklahoma City Thunder.

Nýi samningurinn er til tveggja ára og færir Collison rúman milljarð í rassvasann.

Collison hefur verið lengst allra í leikmannahópi Thunder og er með 3,8 stig og 3,4 fráköst að meðaltali í leik í vetur.

Þessi strákur er á ellefta ári í deildinni en hann var valinn 12. í nýliðavalinu 2003 af Seattle Supersonics sem síðan varð að Thunder.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×