Körfubolti

Curry í stuði í öruggum sigri Warriors

Stephen Curry.
Stephen Curry. vísir/getty
Golden State Warriors er enn á mikilli siglingu og Sacramento Kings náði lítið að trufla þá siglingu í nótt.

Stephen Curry skoraði 23 stig og gaf níu stoðsendingar í stórsigri Warriors sem sópaði Kings annað tímabilið í röð.

23-0 kafli hjá Warriors í fyrri hálfleik svo gott sem gerði út um leikinn því Kings náði aldrei að lemja frá sér eftir það.

Eftir að hafa tapað átta leikjum í röð náði Kings að leggja Indiana en allt féll í sama farið hjá þeim í nótt.

Úrslit:

Philadelphia-Denver  105-98

Detroit-Miami  108-91

NY Knicks-Boston  97-108

Portland-Utah  103-102

Sacramento-Golden State  96-121

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×