Aðeins einn bar í Reykjavík með leyfi til að sýna Super Bowl Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. febrúar 2015 13:13 "Ég fæ svo margar fyrirspurnir frá túristum og hef eiginlega aldrei fengið jafnmargar erlendis frá. Við lítum á þetta sem þjónustu við ferðamenn,“ segir Einar Sturla Möinichen, eigandi Glaumbars.
Glaumbar var eini skemmtistaðurinn í Reykjavík sem hafði leyfi frá borgaryfirvöldum til þess að hafa opið lengur en til eitt í nótt. Einn stærsti íþróttaviðburður ársins í heiminum, Super Bowl, fór þá fram og stóð til klukkan að ganga fjögur í nótt. Söfnuðust ferðamenn og Íslendingar saman á skemmtistöðum bæjarins af því tilefni til að glápa á leikinn. Eiganda Glaumbars tókst á síðustu stundu að útvega leyfi til að hafa opið fram á nótt. Hann sótti einnig um leyfi til að hafa opið á Hressingarskálanum/Bjarna Fel en var hafnað. Opið var á fleiri stöðum í Reykjavík nótt þótt ekki væru leyfi fyrir því. Gestir Ölvers í Glæsibæ þurftu að yfirgefa staðinn um eittleytið í nótt þegar leikurinn var rétt u.þ.b. hálfnaður. Ástæðan var sú að staðurinn hafði ekki leyfi til þess að hafa opið lengur en til eitt í nótt. Vísir greindi frá málinu í morgun og haft var eftir einum gesta staðarins að alls ekki allir hefðu haft varaplan upp á að horfa á leikinn annars staðar.Glaumbar í Tryggvagötu.Vísir/PjeturEinar Sturla Möinichen, sem meðal annars á og rekur skemmtistaðina Glaumbar og Hressingarskálann/Bjarna Fel Sportbar, var brenndur eftir heimsókn lögreglu á Bjarna Fel á meðan á Super Bowl stóð í fyrra. Þurftu gestir staðarins frá að hverfa og brugðu sumir á það ráð að horfa á það sem eftir lifði leiks í gegnum rúðuna á gangstétt Austurstrætis. „Starfsmaður við öryggisgæslu hjá sendiráðinu var á staðnum og spurði hvort hann ætti að redda þessu fyrir mig,“ segir Einar léttur um uppákomuna í fyrra. Málið sé hins vegar að það er langt í frá auðsótt fyrir vínveitingastaði að fá leyfi til þess að hafa opið lengur en til eitt. Það hafi í raun reynst mjög erfitt. Raunar geti vínveitingastaðir ekki sótt um svokölluð tækifærisleyfi til lengri opnunartíma. Post by Glaumbar Skemmtistaður. Aldrei fengið jafnmargar fyrirspurnir „Ég hef sýnt Super Bowl í gegnum árin,“ segir Einar Sturla en hann er ekki sá eini. Boðað hefur verið til Super Bowl partýs á fjölmörgum skemmtistöðum undanfarin ár án leyfis og því upp á von og óvon hvort lögregla mæti og loki sjoppunni. Einar Sturla ákvað að gera tilraun til að sækja um leyfi þótt svo til engar líkur væri á að það fengist. „Ég sótti um leyfi í byrjun janúar fyrir Hressó og Glaumbar,“ segir Einar sem fékk svar á mánudaginn fyrir viku. Synjun í báðum tilfellum. Einar segist hafa átt von á synjun enda hafi hann fengið þau skilaboð, þegar hann var hvattur til að sækja um hjá borginni, að von væri á neitun. „Sæktu bara um leyfi en ég veit þú færð það neikvætt,“ rifjar Einar upp. Vika var til stefnu og komst Einar að því að möguleiki væri á að fá undanþágu og leyfi en þá þyrfti að koma með erindi inn á fund Borgarráðs Reykjavíkur. Hjálpaði til að Einar er félagsmaður í Samtökum ferðaiðnaðarins. Þau skoðuðu málið með honum og komust að því að leggja þyrfti málið fyrir fund borgarráðs sem var á dagskrá á fimmtudaginn síðasta. „Ég fæ svo margar fyrirspurnir frá túristum og hef eiginlega aldrei fengið jafnmargar erlendis frá. Við lítum á þetta sem þjónustu við ferðamenn.“Úr fundargerð Borgarráðs Reykjavíkur frá fundi síðastliðinn fimmtudag.Auðsótt leyfi í Kópavogi Einar segir að þau hafi verið að bardúsa í að vinna erindið til borgarráðs framan af viku. Þau hafi verið meðvituð um að Kópavogsbær hefði veitt skemmtistaðnum Spot í Kópavogi leyfi til lengri opnunar án nokkurs vesens. „Við bentum á að það væri eitthvað skrýtið við það að ferðamenn í Reykjavík þyrftu að fara í Kópavog til að horfa á leikinn,“ segir Einar. Óhætt er að segja að áhugi á leiknum um allan heim sé gríðarlega mikill. Vestanhafs er enginn viðburður sem kemst með tærnar þar sem Super Bowl hefur hælana hvað sjónvarpsáhorf varðar. Fyrsti sunnudagurinn í febrúar er lagður undir leikinn og varla sála á ferð á götum borga og bæjar í Norður-Ameríku. „Það er í yfirlýstri stefnu borgarinnar að veita fjölbreytta þjónustu fyrir ferðamenn,“ segir Einar Sturla. Á fimmtudaginn var erindið svo tekið fyrir. Fékkst leyfi fyrir lengri opnun á Glaumbar en afsvar fyrir lengri opnun á Hressingarskálanum. Borgarfulltrúar Framsóknar og flugvallavina sátu þó hjá við afgreiðslu málsins „á þeim forsendum að við teljum varhugavert fordæmi að veita undanþágur á þeim grundvelli sem framlögð gögn bera með sér.“ Einar Sturla segist þurfa að skila greinargerð til borgarráðs um hvernig til hafi tekist. Leyfið hafi fengist með þeim formerkjum að um tilraun hafi verið að ræða.Fjölmargir hafa horft á fótboltaleik á Glaumbar í gegnum árin.Vísir/ValliLögregla mætti ekki á Bjarna Fel Einar segir að fullt hús hafi verið á Glaumbar í gær en langstærstur hluti gesta hafi verið útlendingar. Flestir hafi verið á bandi Seattle Seahawks sem biðu á endanum lægri hlut eftir æsispennandi lokasekúndur. Alls konar fólk hafi verið mætt og meðal þeirra sem pantað hafi borð fyrir tuttugu var yfirmaður hjá Wal Mart á sviði samfélagsmiðla. Sem fyrr segir rekur Einar Sturla einnig Hressingarskálann/Bjarna Fel Sport bar í Austurstræti sem sýna alla helstu íþróttaviðburði í beinni. Leikurinn var sýndur á Bjarna Fel í nótt líkt. Eigendur fleiri skemmtistaða í borginni, á borð við Ölver, höfðu leikinn til sýningar í nótt án leyfis. Post by Bjarni Fel sportsbar. „Maður er ekkert í því að brjóta reglur um opnunartíma en þetta er svo sérstakt tilfelli,“ segir Einar Sturla. Hann bendir á að hann sé í sambandi við bandaríska sendiráðið í kringum stórleiki sem þennan en sendiráðið beini fólki, meðal annars starfsmönnum sendiráðsins, á staðinn. Einar segir ljóst að Reykjavíkurborg verði að geta boðið ferðamönnum, ekki síst bandarískum, upp á að horfa á Super Bowl þegar þeir sækja borgina heim. Að neðan má sjá æsispennandi lokasekúndur leiksins í gærkvöldi en nánari umfjöllun má lesa hér.
Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Einn besti Super Bowl-leikur sögunnar Super Bowl-leikurinn í nótt var ótrúleg skemmtun og lokakaflinn einn sá dramatískasti frá upphafi. 2. febrúar 2015 09:34 Super Bowl partý á Ölveri leyst upp af lögreglu Um fimmtíu manns voru á staðnum en þeir þurftu að finna sér nýjan samastað þegar leikurinn var u,þ.b. hálfnaður. 2. febrúar 2015 09:58 Umdeildasta auglýsing Super Bowl Auglýsing tryggingafélagsins Nationwide þykir einstaklega niðurdrepandi. 2. febrúar 2015 11:50 Þjálfari Seattle tók á sig sökina 20 sekúndur á klukkunni, eitt skref eftir í markið og leikhlé inni. Seattle var með einn sterkasta hlaupara deildarinnar tilbúinn að klára leikinn en liðið ákvað að kasta. 2. febrúar 2015 09:57 Mest lesið Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Innlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Katrín orðin stjórnarformaður Innlent Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Innlent Fleiri fréttir Talinn að hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Katrín orðin stjórnarformaður Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Sjá meira
Einn besti Super Bowl-leikur sögunnar Super Bowl-leikurinn í nótt var ótrúleg skemmtun og lokakaflinn einn sá dramatískasti frá upphafi. 2. febrúar 2015 09:34
Super Bowl partý á Ölveri leyst upp af lögreglu Um fimmtíu manns voru á staðnum en þeir þurftu að finna sér nýjan samastað þegar leikurinn var u,þ.b. hálfnaður. 2. febrúar 2015 09:58
Umdeildasta auglýsing Super Bowl Auglýsing tryggingafélagsins Nationwide þykir einstaklega niðurdrepandi. 2. febrúar 2015 11:50
Þjálfari Seattle tók á sig sökina 20 sekúndur á klukkunni, eitt skref eftir í markið og leikhlé inni. Seattle var með einn sterkasta hlaupara deildarinnar tilbúinn að klára leikinn en liðið ákvað að kasta. 2. febrúar 2015 09:57