Handbolti

HK vann loksins leik | Úrslit kvöldsins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Andri Marinó
HK vann aðeins sinn þriðja sigur í Olísdeild karla á tímabilinu er liðið mætti Fram í kvöld og vann sannfærandi sigur, 32-25.

HK hafði tapað tíu deildarleikjum í röð og vann síðast Aftureldingu í Mosfellsbæ þann 23. október - fyrir tæpum fjórum mánuðum síðan.

Leikurinn var jafn framan af en HK leiddi með þremur mörkum í hálfleik, 16-13, og jók svo forystuna jafnt og þétt í síðari hálfleik.

Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í kvöld. Arnar Freyr Ársælsson og Birkir Már Guðbjörnsson, leikmenn Fram, fyrir þrjár brottvísanir en HK-ingurinn Guðni Már Kritinsson fékk beint rautt spjald.

HK er engu að síður neðst í deildinni með sex stig en Fram er í áttunda sæti með þrettán.

Þá unnu Haukar sigur á ÍR-ingum, 29-24, á heimavelli sínum á Ásvöllum og eru í fimmta sæti deildarinna rmeð átján stig. ÍR er í þriðja sæti með 25 stig.

Úrslit kvöldsins:

Fram - HK 25-32(13-16)

Mörk Fram: Garðar B. Sigurjónsson 8, Ólafur Magnússon 4, Sigurður Örn Þorsteinsson 3, Kristinn Björgúlfsson 2, Stefán B. Stefánsson 2, Þröstur Bjarkason 2, Stefán Darri Þórsson 2, Arnar Freyr Ársælsson 1, Arnar Snær Magnússon 1.

Mörk HK: Daði Laxdal Gautason 7, Leó Snær Pétursson 5, Þorgrímur Smári Ólafsson 5, Andri Þór Helgason 4, Atli Karl Bachmann 4, Tryggvi Þór Tryggvason 3, Máni Gestsson 2, Pálmi Fannar Sigurðsson 1, Guðni Már Kristinsson 1.

Haukar - ÍR 29-24 (14-12)

Mörk Hauka: Adam Baumruk 6, Árni Steinn Steinþórsson 5, Vilhjálmur Geir Hauksson 3, Þröstur Þráinsson 3, Einar Pétur Pétursson 3, Tjörvi Þorgeirsson 2, Janus Daði Smárason 2, Heimir Óli Heimisson 2, Elías Már Halldórsson 2, Jón Þorbjörn Jóhannsson 1.

Mörk ÍR: Jón Heiðar Gunnarsson 4, Arnar Birkir Hálfdánarson 4, Aron Örn Ægisson 3, Björgvin Þór Hólmgeirsson 3, Bjarni Fritzson 2, Eggert Sveinn Jóhannsson 2, Sigurjón Friðbjörn Björnsson 2, Daníel Ingi Guðmundsson 2, Davíð Georgsson 1, Brynjar Valgeir Steinarsson 1.

Valur - FH 31-28

Umfjöllun og viðtöl um leikinn hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×