Körfubolti

Þriðja tap meistaranna í röð | Myndbönd

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tum Duncan virðist hafa forðað sér upp í stúku í leiknum í nótt.
Tum Duncan virðist hafa forðað sér upp í stúku í leiknum í nótt. Vísir/AP
Meistararnir í San Antonio Spurs hafa tapað öllum þremur leikjum sínum eftir stjörnuleik NBA-deildarinnar á dögunum. Í nótt tapaði liðið fyrir Utah á útivelli, 90-81.

Trey Burke skoraði 23 stig fyrir Utah en það var fyrst og fremst varnarleikur liðsins sem skóp sigurinn. San Antonio tapaði boltanum 22 sinnum í leiknum sem er met á tímabilinu.

Utah hefur haldið síðustu fimm andstæðingum sínum undir 100 stigum en miðherjinn Rudy Gobert gaf tóninn með því að verja tvö skot Tim Duncan strax í fyrsta leikhluta. Hann endaði með sjö stig, fjórtán fráköst, þrjá varða bolta og tvo stolna. Duncan var með fjórtán stig og tíu fráköst.

Utah er þó nokkuð á eftir í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Liðið er í ellefta sæti hinnar geysisterku vesturdeildar, tíu sigrum á eftir Oklahoma City sem er í áttunda sæti. San Antonio er skrefi á undan Oklahoma City í sjöunda sætinu.

Houston, sem er í þriðja sæti vesturdeildarinnar, vann botnlið Minnesota á heimavelli, 113-102. James Harden var með sína aðra þrefalda tvennu á tímabilinu - 31 stig, ellefu fráköst og tíu stoðsendingar. Hann klikkaði þó á fyrstu sjö skotunum sínum í leiknum.

LA Clippers, sem hafði unnið fjóra leiki í röð, tapaði í nótt fyrir Mepmhis á heimavelli, 90-87. Mike Conley skoraði átján stig fyrir Memphis og Jeff Green sextán.

Miami Heat vann Philadelphia, 119-108. Luol Deng var með 29 stig og nýtti ellefu af fjórtán skotum sínum í leiknum og Goran Dragic bætti við 23 stigum og tíu stoðsendingum. Dwayne Wade var með átján stig fyrir Miami sem er í sjöunda sætinu í austrinu.

Mikil barátta er um síðustu tvö sætin í úrslitakeppninni austanmegin. Miami og Brooklyn standa þar best að vígi nú en Detroit, Indiana, Charlotte og Boston eru ekki langt undan og eiga enn möguleika á að koma sér í úrslitakeppnina.

Staðan í deildinni.

Úrslit næturinnar:

Miami - Philadelphia 119-108

Chicago - Milwaukee 87-71

Houston - Minnesota 113-102

New Orleans - Toronto 100-97

Denver - Brooklyn 82-110

Phoenix - Boston 110-115

Utah - San Antonio 90-81

LA Clippers - Memphis 87-90

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×