Körfubolti

Durant frá í að minnsta kosti viku

Durant í leik með Oklahoma.
Durant í leik með Oklahoma. vísir/getty
Oklahoma þarf að komast af í NBA-deildinni næstu dagana án síns besta manns, Kevin Durant.

Durant fór í aðgerð um síðustu helgi. Var þá skipt um skrúfu í hægri fæti hans. Sá fótur brotnaði einmitt fyrr í vetur.

Það mun taka Durant að minnsta kosti viku að jafna sig eftir þessa aðgerð. Eftir viku verður staðan tekin á ný.

Durant hefur náð að spila 27 af 55 leikjum Thunder í vetur en liðið er á mikilli siglingu þessa dagana og hefur unnið átta af síðustu níu leikjum sínum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×