Körfubolti

Hjónabandi Fisher lokið

Derek Fisher hefur líklega lifað skemmtilegri tíma.
Derek Fisher hefur líklega lifað skemmtilegri tíma. vísir/getty
Þetta er ekki árið hans Derek Fisher. Það gengur ekkert hjá honum sem þjálfari NY Knicks og nú er hjónabandið á enda.

Fisher giftist Candace árið 2005 en í gær var formlega sótt um skilnað. Þau eiga fjögur börn saman.

„Þetta er erfiður tími fyrir mig persónulega og ég bið, barnanna minna vegna, að þið virðið okkar einkalíf meðan á þessu ferli stendur," sagði Fisher.

Fisher er á sínu fyrsta ári sem þjálfari en er að ná lélegasta árangri sögunnar hjá Knicks.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×