Körfubolti

Sextán ára strákur fékk eins dags samning hjá Houston

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bryson Jones skrifar undir samninginn.
Bryson Jones skrifar undir samninginn. Mynd/@HoustonRockets
Það dreymir marga körfuboltastráka um að spila fyrir sitt uppáhalds NBA-lið en sá draumur rætist þó hjá afar fáum.

Hinn sextán ára gamli Bryson Jones fékk þó að lifa þann draum sinn þótt að kringumstæðurnar væru ekki skemmtilegar.

Bryson Jones er að berjast við hrörnunarsjúkdóm en Houston Rockets var tilbúið að uppfylla ósk hans í samvinnu við Make-A-Wish samtökin.

Forráðamenn Houston Rockets skrifuðu undir eins dags samning við strákinn sem fékk að koma á skotæfingu og hitta alla leikmenn og þjálfara liðsins.

Um kvöldið mætti spilaði Houston Rockets við Orlando Magic og vann leikinn 107-94. Bryson Jones var reyndar bara í stúkunni en hann fékk að eiga leikboltann í leikslok.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×