Körfubolti

Sendiherra Indlands í NBA-deildinni

Sim Bhullar.
Sim Bhullar. vísir/getty
Sim Bhullar skráði sig í sögubækurnar í nótt.

Þá varð hann fyrsti maðurinn af indverskum uppruna til þess að spila í NBA-deildinni.

Þessi 22 ára risi spilaði síðustu 16 sekúndurnar fyrir Sacramento Kings gegn Minnesota Timberwolves.

„Þetta var frábær tilfinning og ég er ánægður með að vera sendiherra Indlands í íþróttinni," sagði Bhullar sem vonast eftir því að íþróttin muni njóta meiri hylli í Indlandi með tilkomu hans í deildina.

„Vonandi sjá krakkar í Indlandi að þetta er hægt og við fáum fleiri Indverja í deildini síðar."

Bhullar er stoltur af uppruna sínum en sjálfur er hann reyndar frá Kanada. Fæddur og uppalinn þar. Foreldrar hans eru aftur á móti frá Indlandi.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×