Arnar rauf engar merkingar og kærufrestur runninn út Stefán Árni Pálsson skrifar 28. apríl 2015 11:20 Arnar Pétursson úr ÍR hafði betur eftir harða baráttu við Ingvar Hjartarson úr Fjölni. vísir/stefán
Mótshaldarar Víðavangshlaups ÍR vilja koma á framfæri að framkvæmd hlaupsins og merkingar brautar hafi verið í samræmi við það sem tíðkast hefur hérlendis með hlaup sem þetta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍR en óskað var eftir áliti Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) á úrslitum hlaupsins og dómgæslu. ÍR-ingar funduðu í gær með forsvarsmönnum Frjálsíþróttasambands Íslands vegna endasprettsins í Víðavangshlaupi ÍR sem fram fór á Sumardaginn fyrsta. Arnar Pétursson úr ÍR hafði betur eftir harða baráttu við Ingvar Hjartarson úr Fjölni.Sjá einnig: Stytti sér leið á lokasprettinum en úrslitin munu standa Munaði einni sekúndu. Niðurstaða fundarins er sú að ekki er forsenda til að breyta úrslitunum og verður Arnar því áfram sigurvegari í hlaupinu.Álit Jónasar Egilssonar, framkvæmdastjóra FRÍ er svohljóðandi:„Hér er átt við atvik rétt fyrir lok hlaupsins, þegar hlaupari fer yfir umferðareyju, bak við ljósastaur og fer styttri hlaupaleið en akstursleið segir til um og flestir aðrir hlauparar fóru um. Þetta gat verið mikilvægt atriði þar sem annar hlaupari sem var í harðri keppni við hann um sigur í hlaupinu. Síðarnefndi hlauparinn fer aðeins lengri leið út fyrir ljósastaurinn, því náði sá sem stytti sér leið mögulega betra forskoti en ella. Þó er ekki hægt að kveða úr um hvort þessi stytting hafi skipt sköpum um endanlega röð þeirra í mark meðal annars þar sem þeir voru, áður en að þessu atviki kom, því sem næst samsíða. Þá virtist sá hlaupari, sem inn fyrir staurinn fór, vera axlarbreidd á undan og hann var innan á keppninaut sínum, þ.e. hefði farið nær staurnum í beygjunni. Hann hefði því líklega haldið eða bætt við forskot sitt á keppninaut sinn vegna staðsetningar sinnar hvort sem er.Frjálsíþróttasambandinu er ljóst að reglum þess og IAAF um götuhlaup er ábótavant er varðar eftirlit og með framkvæmd götuhlaupa. Einnig er sambandinu það kunnugt að fræðsla dómara og mótshaldara götuhlaupa hér á landi er líka ábótavant. Ekki eru til reglur t.d. um eftirlit með framkvæmd hlaupa hér á landi.Úrbætur í þessum málum voru m.a. til umræðu á fundi stjórnar FRÍ síðasta Vetrardag. Þá hefur Frjálsíþróttasamband Evrópu (EAA) kynnt reglur um gæðaeftirlit og framkvæmd götuhlaupa, en unnið er að innleiðingu þeirra hér á landi. Þessar úrbætur eru sérlega nauðsynlegar vegna þeirra krafna sem gerðar eru til framkvæmd götuhlaupa, að hálfu hlaupara sjálfra og að hér var um Meistaramót að ræða. Má stytta sér leið í svona götuhlaupi?????Posted by Óskar Hlynsson on Monday, April 27, 2015Þá virðist sem hlaupstjórn VÍR hafi ekki tekið af með afdráttarlausum hætti hvar hlaupaleið var með merkingum eða upplýst brautarvörð hvernig skyldi staðið að gæslu á þeim stað sem um ræðir.Í lýsingu mælingamanna FRÍ hlaupaleiðinni, sem njóta viðurkenningar IAAF og AIMS, er ekki tilgreint hvar nákvæmlega beygja skuli af Tryggvagötu á Sæbraut til vinstri, öðru vísi en þannig að henni er lýst þannig að hlaupið skul „… austur (Tryggvagötu) að Lækjargötu í áttina að Hörpu …“Beygjan var ekki auðkennd eða varin sérstaklega með brautarverði þegar atvikið átti sér stað, grindverki eða borða.Jónas Egilsson, framkvæmdarstjóri FRÍ.Reglur IAAF taka ekki á merkingum hlaupabrautar en að þær skuli vera greinilegar, en án nánari skilgreiningar. Dómara við götuhlaup ber tafarlaust að vísa keppanda úr leik hann gerist brotlegur við reglur. Slíkt átti sér ekki stað í þessu hlaupi.Reglur IAAF sem eru til fyllingar reglum FRÍ sé þeim ábótavant, kveða á um að kæra skuli úrslit eða framkomu íþróttamanns, innan 30 mínútna (146.3. gr.) eftir er úrslit eru birt. Engin slík kæra eða aths. hefur formlega borist og því verða úrslitin trauðlega kærð skv. því ákvæði.NiðurstöðurLagaleg ábyrgð á þessu atviki getur ekki verið í höndum hlauparans. Hlaupaleið var ekki greinilega afmörkuð eða vörðuð af brautarverði þegar atvikið átti sér stað. Hlauparinn rauf því engar merkingar þegar hann virðist stytta sér leið að markinu. Óvissa um nákvæma staðsetningu hlaupaleiðar og ábyrgð annarra er of mikil til þess. Þá er kærufrestur runninn út skv. reglum IAAF."
Frjálsar íþróttir Mest lesið Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ Enski boltinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Enski boltinn „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Strákarnir hans Sigga Ragga með fjögurra stiga forskot á toppnum Fótbolti Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Körfubolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Enski boltinn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val Íslenski boltinn Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Körfubolti Fleiri fréttir Ofurtölvan telur 73 prósenta líkur á að Arsenal verði meistari Fóru yfir hauskúpuleik Garnachos: „Þetta var hræðileg innkoma“ Selfyssingar svöruðu fyrir sig „Í kvöld varð ég að stíga aðeins upp“ West Ham felldi Wolves Fiorentina fjarlægist fallsætin Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Strákarnir hans Sigga Ragga með fjögurra stiga forskot á toppnum Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Elías með stórleik í sigri í toppslag Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Goðsögn tekur við og þjálfar son sinn Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Besta sætið: Gamli skólinn ekki hrifinn af flagaraklút Sápa Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Of mikil pása gæti verið slæm Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val Fundu loks arftaka eftir að Arnór samdi við HSÍ „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Sjáðu tímamótamark íslenska táningsins eftir „erfiðan“ tíma Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Meiddist tveimur vikum fyrir EM: „Er þetta raunverulegt? Er ég að fara að keppa?“ Wiegman kenndi grasinu í Laugardal um Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Rændir í miðju lyfjaprófi Sjá meira