Gunnar Heiðar Þorvaldsson var maðurinn á bak við bæði mörk Häcken í 2-0 útisigri á Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Gunnar Heiðar skoraði fyrra markið á 41. mínútu og lagði síðan upp það síðara á 64. mínútu. Íslenski framherjinn var því maður leiksins á Örjans Vall í kvöld.
Þetta var fyrsta mark Gunnars Heiðars á tímabilinu en hann hafði ekki skorað í fyrstu fimm leikjum sínum.
Þetta var annar sigur Häcken í síðustu þremur leikjum en liðið er níu sætinu með átta stig í fyrstu sjö leikjum sínum.
Hjálmar Jónsson var allan tímann á bekknum þegar IFK Gautaborg vann 2-1 sigur á Falkenberg.
Eiður Aron Sigurbjörnsson og Hjörtur Logi Valgarðsson voru báðir í byrjunarliðið Örebro sem tapaði 3-0 á útivelli á móti Kalmar og situr á botni deildarinnar.
