
Aron: Býst við að byggja á sama kjarna
Ísland er í B-riðli ásamt Króatíu, Hvíta-Rússlandi og Noregi en þrjú efstu liðin í hverjum riðli fara áfram.
Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður hjá 365, hitti landsliðsþjálfarann Aron Kristjánsson að máli á Norðurálsmótinu á Akranesi í dag og ræddi við hann um dráttinn.
„Þetta eru allt sterk lið en mér líst ágætlega á þennan riðil og við hlökkum til,“ sagði Aron sem telur að íslenska liðið geti farið upp úr riðlinum.
„Já, sérstaklega miðað við spilamennskuna sem við höfum sýnt að undanförnu. Við höfum spilað vel og þurfum að halda því áfram og byggja ofan á það sem við höfum gert vel.
„Það er lykilatriði að menn haldist heilir og nú þurfa þeir bara að vinna vel hjá sínum félagsliðum.“
En hvernig sér Aron undirbúninginn fyrir lokakeppnina í Póllandi fyrir sér og er erfiðara að vera með lið í eldri kantinum í svona undirbúningi?
„Ég er ekki alveg sammála þessu. Þetta er tvíeggja. Leikmenn sem eru reyndir eru oft með meiri leikskilning og það er auðveldara að koma þeim inn í leikatriði. Hins vegar kemur hugsanlega einhver þreyta á móti á meðan ungviðið er ákafara en vantar kannski reynslu og leiksskilning.
„Mér finnst strákarnir ótrúlega vel mótiveraðir þessa dagana og ef við náum að stilla upp okkar sterkasta liði á EM munum við gera gott mót,“ sagði Aron sem býst ekki við miklum breytingum á íslenska liðinu fyrir EM.
„Nei, nú látum við þennan hálfa vetur þróast og sjáum hvort allir verði ekki heilir og í standi. En ég býst fastlega við því að byggja á sama kjarna.“
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Tengdar fréttir

Strákarnir okkar heppnir með riðil á EM í handbolta 2016
Íslenska handboltalandsliðið lenti í nokkuð þægilegum riðli á EM í handbolta 2016 þegar dregið var í Kraká í Póllandi í dag. Evrópumótið í Pólland fer fram 17. til 31. janúar 2016.

Fyrsti leikurinn á EM verður við Norðmenn
Íslenska handboltalandsliðið er í riðli með Króatíu, Noregi og Hvíta-Rússlandi í úrslitakeppni Evrópumótsins sem fram fer í janúar. Nú er búið að raða upp leikjunum í riðlunum.

Guðmundur Guðmundsson: Ég vil helst sleppa við að mæta Íslandi
Íslenska handboltalandsliðið verður í pottinum í hádeginu í dag þegar dregið verður í riðla í úrslitakeppni Evrópumótsins í handbolta sem fer fram í Póllandi í byrjun næsta árs.

Aron áfram með landsliðið | Gunnar og Óli Stef til aðstoðar
Aron Kristjánsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HSÍ og mun því stýra íslenska karlalandsliðinu til ársins 2017.

Aron: Ánægjuleg lending
Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag hefur Aron Kristjánsson skrifað undir nýjan samning við HSÍ sem gildir til næstu tveggja ára.

Formaður HSÍ: Skoðuðum ekki aðra kosti í starfið
Handknattleikssambandið gekk frá tveggja ára framlengingu á samningi Arons Kristjánssonar sem landsliðsþjálfara karla í dag.