Umfjöllun, viðtöl og myndir: Þróttur - ÍBV 0-2 | Öruggt hjá Eyjamönnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. júní 2015 12:09
Eyjamenn eru komnir í átta-liða úrslit Borgunarbikarsins eftir 0-2 sigur á Þrótti á Laugardalsvellinum í kvöld. Jonathan Glenn og Víðir Þorvarðarson skoruðu mörkin í sitthvorum hálfleiknum.Valgarður Gíslason, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á vellinum og tók meðfylgjandi myndir. ÍBV, sem er í neðsta sæti Pepsi-deildarinnar, var sterkari aðilinn gegn toppliði 1.deildar og verðskuldaði sigurinn. Gregg Ryder gerði talsverðar breytingar á liði Þróttar fyrir leikinn og byrjaði t.a.m. með sinn markahæsta mann, Viktor Jónsson, á bekknum. Lykilmenn á borð við Dion Jeremy Acoff, Hall Hallsson og Karl Brynjar Björnsson voru einnig á meðal varamanna. Hvort það var þessum hræringum um að kenna eða ekki, þá voru Þróttarar ólíkir sjálfum sér í leiknum. Það var lítill taktur í spilinu og þeim gekk bölvanlega að halda boltanum framarlega á vellinum. Þeir voru einnig gjarnir á að tapa boltanum á hættulegum stöðum og þeim hefndist fyrir það á 35. mínútu þegar Eyjamenn nýttu sér misheppnaða sendingu Arons Lloyd Green og fóru upp vinstri kantinn. Tom Even Skogsrud átti flotta sendingu á nærstöngina þar sem Glenn renndi sér á boltann og skoraði sitt fjórða mark í sumar. Annars sköpuðu Eyjamenn sér ekki mörg færi ef frá er talinn mikill darraðadans upp við mark Þróttar eftir 15 mínútna leik þar sem Bjarni Gunnarsson átti m.a. þrjú skot í röð í varnarmann. Mees Junior Siers fékk svo boltann eftir síðasta skot Bjarna en skaut framhjá. Seinni hálfleikur var svo gott sem tíðindalaus. Til byrja með tafðist leikurinn mikið vegna stöðugra meiðsla leikmanna fyrstu 10-15 mínútum seinni hálfleiks og fyrir vikið komst leikurinn aldrei á neitt flug. Þróttarar sóttu af veikum mætti gegn Eyjaliði sem féll á köflum full aftarlega á völlinn í seinni hálfleik. Gestirnir úr Eyjum voru þó aldrei í vandræðum með sóknarlotur Þróttara sem voru fáar og fremur máttlitlar. Vörn ÍBV var þétt í kvöld og Abel Dharia góður í markinu en það verður spennandi að sjá hvort hann haldi stöðu sinni í deildarleiknum gegn ÍBV á sunnudaginn. Ryder setti loks Viktor og Acoff inn á á 72. mínútu en aðeins þremur mínútum síðar skoraði Víðir Þorvarðarson annað mark ÍBV með föstu skoti eftir sendingu Arons Bjarnasonar og skemmtilegt hlaup Bjarna Gunnarssonar yfir boltann. Þá var leik í raun lokið. Heimamenn voru ólíklegir til að skora og hvað þá tvö mörk. Viktor átti einn skalla í slá rétt fyrir leikslok en annað var það ekki. Eyjamenn spiluðu síðasta stundarfjórðunginn af mikill skynsemi og fögnuðu öruggum sigri og um leið sæti í átta-liða úrslitum bikarkeppninnar.Trausti: Spiluðum ekki okkar leik Trausti Sigurbjörnsson, markvörður Þróttar, var ekki ánægður með frammistöðu síns liðs í tapinu fyrir ÍBV í kvöld. „Þetta eru mikil vonbrigði, við spiluðum ekki okkar leik og það varð okkur að falli,“ sagði Trausti. „Við vissum alveg hvað þeir ætluðu að gera en við sýndum ekki okkar rétta andlit. „Við vorum mikið í kýlingum í fyrri hálfleik. Þeir pressuðu okkur og við áttum í vandræðum með það. „Við áttum erfitt með að koma boltanum upp miðjuna og enduðum oft í löngum sendingum á Omar (Koroma) og hann var í erfiðleikum með miðverðina hjá þeim. „Við áttum að geta skapað okkur fleiri færi en leikur okkar var betri í seinni hálfleik en í þeim fyrri,“ sagði Trausti. Þetta var fyrsta tap Þróttar í sumar en lærisveinar Greggs Ryder eru á toppnum í 1. deildinni með fullt hús stiga eftir sex umferðir. „Þetta hefur gengið vel en við þurfum að átta okkur á því að það er ekkert í hendi. Það eru 16 leikir og Þróttur hefur áður byrjað vel en endað illa. „Það getur ýmislegt gerst en ef við höldum rétt á spilunum ættum við að geta haldið okkur á toppnum. Við erum búnir með rosalega erfitt prógramm og erum búnir að spila við þau fjögur lið sem var spáð toppsætunum og framundan eru leikir við Fram og Fjarðabyggð sem var ekki spáð eins góðu gengi. „Við þurfum að endurstilla okkur til að vinna þá leiki,“ sagði Trausti að endingu.Jóhannes: Átti von á því að Acoff og Viktor myndu byrja inn á Jóhannes Harðarson, þjálfari ÍBV, var ánægður með sigur Eyjamanna á Þrótti í kvöld og sætið í átta-liða úrslitum bikarkeppninnar. „Þetta gekk eins og ég vonaðist eftir, það má segja það,“ sagði Jóhannes í samtali við Vísi eftir leik. „Við vissum að þetta yrði erfiður leikur á móti góðu liði Þróttar sem hefur verið á mikilli siglingu í upphafi móts. Það var fyrst og fremst ánægjulegt að halda hreinu og svo gerðum við tvö góð mörk.“ Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, byrjaði með sínar helstu sóknarkanónur (Viktor Jónsson og Dion Jeremy Acoff) á bekknum. Jóhannes sagðist hafa búist við þeim í byrjunarliði Þróttara. „Við áttum von á því að þeir myndu byrja og vorum lögðum þetta upp þannig. En þeir eru með spræka stráka á bekknum sem eru líka öflugir þannig ég veit ekki hvernig þetta hefði þróast hefðu þeir verið með,“ sagði Jóhannes sem var ánægður með varnarleik ÍBV í kvöld. „Ég er mjög sáttur með vörnina. Við gerðum mjög vel varnarlega og pressuðum þá vel í fyrri hálfleik. Varnarleikurinn var góður í gegnum leikinn og þeir fengu lítið af færum.“ Markvörðurinn Abel Dharia hefur ekki verið í byrjunarliði ÍBV í Pepsi-deildinni en stóð sig vel í kvöld. Í ljósi þess kemur það til greina að láta hann spila næsta deildarleik gegn Val á sunnudaginn kemur? „Við tökum þá umræðu bara á morgun og hinn. Eins og ég hef áður sagt er Gaui (Guðjón Orri Sigurjónsson) búinn að standa sig frábærlega í markinu þannig að þetta er hálfgert lúxusvandamál fyrir okkur,“ sagði Jóhannes sem vonast til að sigurinn í kvöld komi Eyjamönnum almennilega í gang í deildinni. „Vonandi hefur þetta góð áhrif á okkur og gefur okkur aukinn kraft fyrir næstu leiki.“Jonathan Glenn skoraði fyrra mark ÍBV.Vísir/Valli
Íslenski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn Enski boltinn „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Handbolti Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni Íslenski boltinn „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Handbolti Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Uppgjörið: Fram - Þór/KA 1-3 | Tvö mörk frá Söndru Maríu í sigri Þór/KA Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Þróttur mætir bikarmeisturunum Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Bikarævintýri Fram heldur áfram Markamaskínan Tokic og margfaldur Íslandsmeistari í 5. deildina „Elska að horfa á FH“ Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Bestu mörkin: Uppgjör fyrstu fimm umferða Bestu deildarinnar Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn Kára í Akraneshöllinni Afturelding lagði ÍA á Akranesi og ÍBV hefndi sín Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Þór komið áfram eftir öruggan sigur á Suðurlandi Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Víðir og Reynir ekki í eina sæng Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Uppbótartíminn: „Ég hef miklar áhyggjur af þeim“ Þróttur skoraði sex og flaug áfram Valur marði Fram í framlengingu Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum Hafa notað sama byrjunarliðið í öllum leikjunum Sjá meira
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast