
Viðar: Þjálfarinn er svolítið sérstakur

Viðar spilar með Jiangsu Guoxin-Sainty í Kína og segir að hitinn þar sé oftast í kringum 30-35 stig og fari hækkandi eftir því sem líður á sumarið.
Það vakti talsverða athygli þegar Viðar gekk í raðir Jiangsu í byrjun árs eftir að hafa orðið markakóngur í norsku úrvalsdeildinni í fyrra. Hann segist ánægður með lífið í Kína en viðurkennir að það hafi tekið tíma að aðlagast aðstæðum þar í landi.
„Þetta er fínt og það er búið að ganga þokkalega. Það tók smá tíma að venjast hlutunum þarna. Það var t.a.m. smá sjokk hvað fólkið var lélegt í ensku, maturinn var öðruvísi o.s.frv.
„Mér líður vel þarna og er ekkert að hugsa um annað en spila þarna á næstunni,“ sagði Viðar sem er kominn með fimm mörk í 12 leikjum í kínversku ofurdeildinni. En hversu sterkt lið er Jiangsu og kínverska deildin yfirhöfuð?
„Við erum mjög vel spilandi lið og sennilega meðal þeirra fimm bestu í deildinni. Við ættum að vera með fleiri stig en höfum verið klaufar í nokkrum leikjum,“ sagði Viðar og bætti við:
„Þetta er sterk deild og það er fullt af góðum leikmönnum að spila þarna. Þetta er sterkari deild en sú norska, meira tempó og erfiðara að athafna sig. Leikmenn fá minni tíma með boltann og maður þarf að hlaupa mikið.“
Þjálfari Jiangsu heitir Gao Hongbo og er fyrrverandi landsliðsþjálfari Kína.
„Hann er frekar sérstakur en fínn þjálfari samt. Hann hefur sínar eigin hugmyndir um fótbolta eins og kínversku þjálfararnir sem eru frekar varnarsinnaðir að mínu mati,“ sagði Viðar og bætti því við að munurinn á spilamennsku Jiangsu á heima- og útivelli sé mikill.
„Þegar við erum á útivelli spilum við eins og botnlið, verjumst aftarlega og beitum skyndisóknum. En þegar við spilum á heimavelli erum við aftur orðnir topplið, eins og við erum, og spilum bara okkar bolta,“ sagði Viðar að lokum.
Tengdar fréttir

Alfreð: Ár sem mun gefa mér rosalega mikið
Alfreð Finnbogason vill vera áfram hjá Real Sociedad þrátt fyrir lítinn spilatíma á sinni fyrstu leiktíð á Spáni. Honum fannst leiktíðin skemmtileg þótt erfitt hafi verið að sitja jafnmikið á bekknum og raun bar vitni.

Ragnar: Evrópudeildin frekar óspennandi
Ragnar Sigurðsson er ánægður með lífið í Rússlandi.

Elmar: Auðvelt val að fara til AGF
Theodór Elmar Bjarnason er ánægður með vistaskiptin frá Randers til AGF.

Stuðningsmenn Pescara leggja Facebook-síðu KSÍ undir sig
Æfir út í KSÍ fyrir að nýta rétt sinn til að kalla á Birki Bjarnason í landsleik Íslands og Tékklands.

Alfreð: Sé þjónustu minnar ekki óskað skoða ég eitthvað annað
Framherji íslenska landsliðsins naut fyrsta tímabilsins hjá Real Sociedad þrátt fyrir mikla bekkarsetu.

Eiður Smári: Stefnan hjá Bolton á ekki bara að vera að halda sér uppi
Markahæsti landsliðsmaðurinn frá upphafi gæti verið í betra standi fyrir landsleikinn gegn Tékkum.

Rúnar Már: Vonast til að komast í betra lið
Rúnar Már Sigurjónsson vonast til að komast að hjá betra liði eftir tímabilið.

Rúrik: Alltaf einhverjar sögusagnir í gangi
Rúrik Gíslason vildi lítið gefa upp um framtíð sína.

Kolbeinn: Kominn tími til að fara frá Ajax
Landsliðsframherjinn spilaði ekki mikið með hollenska liðinu á tímabilinu og skoðar sig um í sumar.

Strákarnir æfðu í Dalnum | Myndir
Íslenska landsliðið í fótbolta á fullu í undirbúningi fyrir leikinn mikilvæga gegn Tékkum á föstudagskvöldið.

Kári: Kemur í ljós hvort einhver vill kaupa 33 ára gamlan mann
Miðvörður íslenska landsliðsins á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Rotherham í ensku B-deildinni en er að skoða aðra möguleika.

Ari Freyr með á æfingu: Átti ekki nógu gott tímabil
Ari Freyr Skúlason var mættur á æfingu íslenska landsliðsins á Laugardalsvelli í morgun.

Hannes: Ekki mitt fyrsta val að spila í næstefstu deild
Hannes Þór Halldórsson hefur hug á því að spila í sterkari deild.

Ögmundur: Geri ráð fyrir því að vera markmaður númer eitt hjá Hammarby
Ögmundur Kristinsson er á leið til Hammarby í Svíþjóð.

Jón Daði: Vil komast í stærra félag
"Það er alltaf jafn gaman að koma í landsliðið og mikil tilhlökkun fyrir leiknum," segir Jón Daði Böðvarsson á Laugardalsvelli í dag en hann hefur átt frábæra leiki fyrir íslenska landsliðið í undankeppni EM.

Birkir: Gaman að stuðningsmennirnir söknuðu mín
Blóðheitir stuðningsmenn Pescara létu fúkyrðum rigna yfir KSÍ á Facebook í gærkvöldi þar sem Birkir gat ekki spilað mikilvægan leik.

Aron Einar: Komið á óvart hversu frábær pabbi ég er
Landsliðsfyrirliðinn í fótbolta, Aron Einar Gunnarsson, slær varla feilnótu hvort sem það er innan eða utan vallar þessa mánuðina.