Körfubolti

Rándýrt að láta LeBron auglýsa fyrir sig á Twitter

LeBron James.
LeBron James. vísir/getty
Ef fyrirtæki vilja láta besta körfuboltamann heims, LeBron James, auglýsa fyrir sig á Twitter þá verða þau að opna veskið alla leið.

Það kostar að minnsta kosti tæpar 19 milljónir króna. James er með rúmlega 23 milljónir fylgjenda á Twitter og með mesta verðmæti allra bandarískra íþróttamanna á Twitter.

Fyrirtæki sem sérhæfir sig í að búa til herferðir fyrir íþróttamenn á Twitter hefur búið til verðmat á tíst íþróttamannanna.

Það verðleggur James þetta hátt en næstur á lista hjá þeim er annar körfuboltamaður, Kevin Durant. Tístin hans eru metin á 9 milljónir króna.

Fyrirtækið segir að það kosti auglýsendur fimm sinnum meira að koma vöru á framfæri í sjónvarpi þar sem það nái sama fjölda og LeBron er með af fylgjendum.

Verðmætustu bandarísku íþróttamennirnir á Twitter:

  1. LeBron James
  2. Kevin Durant
  3. Kobe Bryant
  4. Floyd Mayweather
  5. Dwight Howard
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×