Innlent

Trampólín fuku og tré brustu undan vindinum

Gissur Sigurðsson skrifar
Vinnupallar hrundu við að minnsta kosti eina nýbyggingu og þakplötur fóru að losna af nokkrum þökum.
Vinnupallar hrundu við að minnsta kosti eina nýbyggingu og þakplötur fóru að losna af nokkrum þökum. Vísir/Ernir
Mikill  erill var há björgunarsveitum og lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna óveðurs. Víða fóru trampólín að fjúka með tilheyrandi slysahættu og ollu sum þeirra skemmdum á bílum. 

Dæmi  voru um að tré brystu undan vindinum, lausamunir eins og útigrill og garðshúgögn fuku um. Vinnupallar hrundu við að  minnsta kosti  eina nýbyggingu og þakplötur fóru að losna af nokkrum þökum.

Þá skemmdist björgunarsveitarbíll 
þegar stórt veislutjald í grennd við Háskólann hrundi undan vindinum.

Hvergi varð þó stór tjón, eftir því sem best er vitað.

Í Reykjanesbæ fóru líka trampólín af stað og eitt útkall barst vegna foks í Vestmannaeyjum

Vind á að lægja suðvestanlands í dag, en svo er aftur spáð stormi í kvöld, eða meiru en 20 metrum á sekúndu fram á morgundaginn. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×