Innlent

Varað við hverri lægðinni á fætur annarri

Gissur Sigurðsson skrifar
Ferðafólki er bent á að sýna varkárni, sérstaklega við óbrúaðar ár.
Ferðafólki er bent á að sýna varkárni, sérstaklega við óbrúaðar ár. Vísir/Getty Images
Veðurstofan  varar við hverri lægðinni á fætur annarri næstu daga og að þeim kunni að fylgja mikil úrkoma, einkum suðvestanlands, með tilheyrandi vatnavöxtum.

Ferðafólki er bent á að sýna varkárni, 
sér staklega  við óbrúaðar ár og þá verður fylgst með skriðuhættu í tengslum við þetta vatnsveður.

Eftir því sem fréttastofan kemst næst urðu hvergi vandræði vegna veðurs eða 
vatnavaxta  í nótt.  Hins vegar  verður áfram blíða, hlýtt og  sólríkt  á Norðausturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×