Búist er við að Apple muni kynna nýjan iPhone næstkomandi miðvikudag á blaðamannafundi. Hins vegar gæti önnur vara stolið sviðsljósinu, en það er nýr risa iPad.
Sala á iPad hefur dregist saman sex ársfjórðunga í röð, talið er að megi rekja ástæðu þess til þess að snjallsímaskjáir hafa stækkað til muna. Á sama tíma hefur sala á stærri útgáfu af iPhone 6, iPhone 6 Plus gengið mjög vel. Sala á snjallsímum nemur nú tveim þriðju af heildarsölu Apple.
Apple hefur brugðist við dræmri sölu á iPad með því að þróa stærri iPad, talið er að varan verði kölluð iPad Pro og verði milli iPad og MacBook Pro í stærð, með 13 tommu skjá. Nýr iPad gæti því sótt í sig veðrið meðal fólks í viðskiptalífinu og verið svipaður Microsoft vörunni Surface sem býður notendum að nota Windows 10 í spjaldtölvu.
Talið er að nýjar útgáfur af Mac tölvum og Apple TV verði einnig kynntar á miðvikudaginn. Vísir mun fylgjast vel með og uppfæra þegar nýjar fregnir berast.
Mun risa iPad stela sviðsljósinu?
