De Gea verður ekki seldur í janúar Anton Ingi Leifsson skrifar 6. september 2015 13:00 David de Gea verður áfram í herbúðum United út samninginn sinn ef marka má fréttir dagsins. vísir/getty
Manchester United hefur sagt David de Gea, markverði liðsins, að hann sé ekki á leið til Real Madrid í janúar-glugganum, en mikið fíaskó var í kringum de Gea á lokadegi félagsskiptagluggans í sumar. Spænski markvörðurinn vonaðist eftir að fara frá United í sumar og virtist hann vera á leið til Real Madrid á lokadegi gluggans í síðustu viku. Það gekk hins vegar ekki í gegn því pappírar skiluðu sér ekki og de Gea því áfram leikmaður United.Sjá meira: De Gea í leikmannahópi United í Meistaradeildinni United og Real hafa síðan þá sakað hvort annað um að sökin sé ekki hjá sér og benda á hitt liðið. United hefur nú sagt de Gea að þeir muni ekki selja hann þegar janúarglugginn opnar og verði hann hjá félaginu út samninginn. De Gea á níu mánuði eftir af samningi sínum við Real Madrid, en hann hefur ekki spilað leik á þessari leiktíð. Van Gaal, stjóri Manchester United, hefur látið hann sitja uppi í stúku á meðan Sergio Romero, argentínski markvörðurinn, hefur staðið vaktina í marki þeirra rauðklæddu frá Manchester.Sjá meira: Manchester United gefur frá sér tilkynningu: Sökin liggur hjá Real Madrid Spænski markvörðurinn sat allan tímann á bekknum þegar Spánn vann 2-0 sigur á Slóvakíu í gær, en hann óttast að samband hans við Van Gaal verði til þess að hann muni ekki verða fyrsti markvörður Spánverja á Evrópumótinu sem fram fer í Frakklandi næsta sumar.
EM 2016 í Frakklandi Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Sjá meira