Ein af stjörnum Juventus segir að Genoa verði erfiðari mótherji en Man. City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. september 2015 16:00 Martín Cáceres. Vísir/Getty
Ítölsku meistararnir í Juventus byrjuðu vel í Meistaradeildinni þegar liðið vann 2-1 sigur á toppliði ensku úrvalsdeildarinnar í Manchester City. Það gengur ekki eins vel í titilvörninni heima fyrir. Mario Mandzukic og Álvaro Morata skoruðu mörkin á síðustu tuttugu mínútunum eftir að Manchester City hafði komist í 1-0. Manchester City hefur fullt hús eftir fimm umferðir í ensku úrvalsdeildinni en eins og oft áður er liðið í vandræðum í Meistaradeildinni. Juventus er aftur á móti með aðeins eitt stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar í ítölsku A-deildinni. Martín Cáceres, úrúgvæski varnarmaðurinn í liði Juventus, býst við erfiðri leik á móti Genoa um helgina en á Etihad Stadium á þriðjudaginn. „Við vitum að við erum með gott lið og við sýndum það líka í þessum leik á móti Manchester City. Það er hinsvegar erfiðara að spila í A-deildinni," sagði Martín Cáceres við Juventus-TV og útskýrði þessa fullyrðingu sína aðeins betur. „Við fáum miklu meira pláss í Evrópuleikjunum og þeir leikir eru miklu opnari. Það verður ekki þannig á móti Genoa," sagði Cáceres. Juventus tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni á móti Udinese (0-1) og Roma (1-2) og gerði síðan 1-1 jafntefli við Chievo um síðustu helgi. Leikurinn á móti Genoa fer fram á útivelli en Genoa-liðið hefur 3 stig eftir 3 leiki. Leikur Genoa og Juventus fer fram á sunnudaginn klukkan 16.00 og leikurinn verður sýndir beint á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Ítalski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Í beinni: Real Madrid - Espanyol | Þurfa að halda í við sjóðheita Börsunga Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Sjá meira