Björk Vilhelmsdóttir sagði í viðtalið við Fréttablaðið í gær að skilyrða þyrfti fjárhagsaðstoð í Reykjavíkurborg og játaði spurningu blaðamanns um hvort það væri aumingjavæðing í félagslega kerfinu. Hún sagði að borgin þyrfti að líta til sveitafélaga eins og Hafnarfjarðar þar sem góðum árangri hefur verið náð með slíku átaki.
Í apríl í fyrra hófst verkefnið Áfram í Hafnarfirði sem felst í stuðningi til virkni í stað þess að fá fjárhagsaðstoð. Einstaklingur sem biður um fjárhagsaðstoð er þannig boðið starf í staðinn, ef hann er vinnufær.
Umfang fjárhagsaðstoðar Hafnarfjarðarbæjar margaldaðist á árunum 2007-2013 eins og í öðrum sveitafélögum. Síðastliðna sextán mánuði hefur dregið mjög úr aðstoðinni. Ef bornir eru saman fyrstu sex mánuðir ársins í ár og í fyrra er um 36 prósent færri á fjárhagsaðstoð. Til samanburðar fækkaði notendum fjárhagsaðstoðr í Reykjavík um fjögur prósent á milli ára.
Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðar, segir það skipta sköpum að bæjaryfirvöld hafi staðið að baki verkefninu.
„Félagsráðgjafarnir sem vinna í málaflokknum komu með hugmyndirnar og fengu svo stuðning bæjaryfirvalda sem bjuggu til hundrað fjölbreytt störf. Einnig fengum við atvinnurekendur í lið með okkur og fengu þeir borgaða fjárhagsaðstoðina í stað þess að ráða fólk í störf. Það er hvati fyrir fólk að taka starfinu því launin eru hærri en sem nemur fjárhagsaðstoðinni.“
Aumingjavæðing ógeðfellt hugtak

Áslaug Friðriksdóttir segist ekki koma orð Bjarkar á óvart. "Ég er búin að benda á þetta í mörg ár, það er alltof mikið af vinnufæri fólki á fjárhagsaðtoð og gríðarlegur slaki verið gagnvart aðstoðinni. Reykvískar fjölskyldur borga um 440% meira en fjölskyldur á Akureyri vegna fjárhagsaðstoðar," segir Áslaug. Hún segir svör meirihlutans lengi hafa verið að þetta væru eðlileg áhrif bankahrunsins og það væri ekki val fólks að vera ábótum. "Ég held að öllum sé ljóst nú að svo er ekki. Stefna meirihlutans hefur viðhaldið þessum vanda. Nú blasir við rúmlega 3 milljarða kostnaður vegna fjárhagsaðstoðar á næsta ári sem hefur nánast ekkert dregist saman frá hruni þrátt fyrir gjörbreytt atvinnuástand."

„Mér finnst aumingjavæðing ákaflega ógeðfellt hugtak,“ sagði Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis og flokkssystir Bjarkar Vilhelmsdóttur, þegar Fréttablaðið bar orð Bjarkar undir Sigríði. „Að nota aumingjavæðing jafngildir því að einstaklingsvæða þann vanda sem óheft markaðshyggja hefur kallað yfir okkar samfélag,“ sagði Sigríður Ingibjörg. Ekki náðist tal af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra en í vikulegum tölvupósti sínum skrifaði hann að Björk ætti langan og farsælan feril að baki. Hennar verði sárt saknað og Dagur mælti með viðtalinu við hana í Fréttablaðinu.
