Körfubolti

Breyting á úrslitakeppni NBA-deildarinnar

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Silver, hér með Golden State Warriors, ríkjandi NBA-meisturunum.
Silver, hér með Golden State Warriors, ríkjandi NBA-meisturunum. Vísir/Getty
NBA-deildin staðfesti í gær að breyting yrði á fyrirkomulagi úrslitakeppninnar í vor en í stað þess að sigurvegari hvers riðils sé tryggt sæti í einum af efstu fjóru sætunum myndu öll liðin í hvorri deild fyrir sig raðast eftir sigurhlutfalli.

NBA deildarkeppnin inniheldur 30 lið sem skiptast í Austur- og Vesturdeild en innan hvorrar deildar eru þrír riðlar.

Hefur það tíðkast undanfarin ár að lið sem vinna riðil sinn séu með öruggt sæti meðal fjögurra efstu liðanna þegar úrslitakeppnin hefst óháð því hvort lið úr öðrum riðlum séu með betri árangur það tímabil.

Kom þessi staða síðast upp á nýafstöðnu tímabili þegar Portland Trailblazers fékk heimaleikjarétt sem liðið í fjórða sæti í úrslitakeppninni þrátt fyrir að hafa lent í 6. sæti í gríðarlega sterkri Vesturdeild.

Verður liðum héðan í frá raðað eftir vinningshlutfalli og fá efstu átta liðin sæti í úrslitunum hvert ár en allir stjórnarmeðlimir NBA-deildarinnar samþykktu breytinguna.

Fjögur efstu liðin í úrslitakeppni fá heimavallarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og er því um gríðarlega mikilvægan hlut að ræða.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×