Miklir vatnavexti eru í ám á Suðausturlandi. Þannig er Hverfisfljót til dæmis í foráttu vexti, að sögn Veðurstofunnar, og vatnshæð við Skálmarbrú er í met hæð. Þá hafa lækir víða bólgnað upp og belja fram.
Áfram er spáð mikilli rigningu suðaustanlands fram á morgundaginn og síðan verður rigning á svæðinu alveg fram undir helgi. Það er líka mikið eða mjög mikið rennsli í ám á Suðvesturlandi en ekki hafa borist fregnir af tjóni á því svæði.
Vatnavextir í ám á Suðausturlandi
Gissur Sigurðsson skrifar
