Körfubolti

Fyrstu körfur tíu nýliða í NBA | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Stuðningsmenn Knicks trylltust af reiði þegar Porzingis var valinn en hann fer vel af stað.
Stuðningsmenn Knicks trylltust af reiði þegar Porzingis var valinn en hann fer vel af stað. vísir/getty
Nýliðarnir í NBA-deildinni eru byrjaðir að láta til sín taka, en nýtt tímabil hófst aðfaranótt miðvikudagsins.

Í nótt voru margir nýliðar á ferðinni, en Karl Anthony Towns, sem var valinn fyrstur af Minnesota Timberwolves, skoraði 14 stig og tók tólf fráköst í eins stigs sigri á Los Angeles Lakers.

Tveir evrópskir nýliðar; Lettinn Kristaps Porzingis hjá Knicks og Króatinn Mario Hezonja hjá Orlando Magic, áttu einnig fína leiki í nótt.

Lettinn stóri, sem var valinn fjórði í nýliðavalinu, skoraði 16 stig og tók fimm fráköst auk þess sem hann varði eitt skot þegar Knicks vann öruggan sigur á Bucks, 122-97.

Skyttan Mario Hezonja kom inn af bekknum fyrir Orlando í eins stigs tapi gegn Washington og skoraði ellefu stig og gaf tvær stoðsendingar á 25 mínútum. Hann hitti úr þremur af fimm þriggja stiga skotum sínum.

Hér að neðan má sjá fyrstur körfur tíu nýliða deildarinnar og flott myndband þar sem fyrstu körfur margra af skærustu stjörnum NBA-deildarinnar í gegnum tíðina eru teknar saman.

Röðin á nýliðunum í myndbandinu (nýliðavalið):

1. Karl-Anthony Towns, Minnesota Timberwolves (1)

2. D'Angelo Russell, Los Angels Lakers (2)

3. Justise Winslow, Miami Heat (10)

4. Jahil Okafor, Philadelphia 76ers (3)

5. Rondae Hollis-Jefferson, Brooklyn Nets (23)

6. Mario Hezonja, Orlando Magic (5)

7. Emmanuel Mudiay, Denver Nuggets (7)

8. Kristaps Porzingis, NY Knicks (4)

9. Devin Booker, Phoenix Suns (13)

10. Willie Cauley-Stein, Sacramento Kings (6)

Nýliðarnir skora: Fyrstu körfur stærstu nafnanna:
NBA

Tengdar fréttir

NBA: OKC vann San Antonio og bæði Chicago og Detroit byrja 2-0 | Myndbönd

Fjölmörg lið hófu NBA-tímabilið sitt í nótt þegar fjórtán leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta. Tvö þeirra, Chicago Bulls og Detoit Pistons, fögnuðu hinsvegar sigri annað kvöldið í röð. New Orleans Pelicans var aftur á móti fyrsta liðið til að tapa tveimur leikjum á þessu tímabili.

Strákarnir í Golden State stríddu Charles Barkley

Charles Barkley, körfuboltaspekingur NBA-deildarinnar á TNT-sjónvarpsstöðinni, þurfti að éta orðin sín í júní síðastliðnum þegar Golden State Warriors tryggði sér NBA-meistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×