Körfubolti

NBA: OKC vann San Antonio og bæði Chicago og Detroit byrja 2-0 | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Russell Westbrook var flottur í nótt.
Russell Westbrook var flottur í nótt.
Fjölmörg lið hófu NBA-tímabilið sitt í nótt þegar fjórtán leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta. Tvö þeirra, Chicago Bulls og Detoit Pistons, fögnuðu hinsvegar sigri annað kvöldið í röð. New Orleans Pelicans var aftur á móti fyrsta liðið til að tapa tveimur leikjum á þessu tímabili.

Russell Westbrook skoraði 33 stig og gaf 10 stoðsendingar að auki þegar Oklahoma City Thunder vann 112-106 heimasigur á San Antonio Spurs í fyrsta leik liðsins undir stjórn nýja þjálfarans Billy Donovan.

Kevin Durant var með 22 stig en hitti bara úr 6 af 19 skotum sínum. Enes Kanter var með 15 stig og 16 fráköst af bekknum. Kawhi Leonard var langatkvæðamestur hjá San Antonio með 32 stig en LaMarcus Aldridge skoraði 11 stig og tók 5 fráköst í sínum fyrsta leik með Spurs en hann var í níu ár hjá Portland.

Jimmy Butler skoraði 25 stig og Nikola Mirotic var með 18 stig þegar Chicago Bulls fylgdi á eftir sigri á Cleveland í fyrrinótt með því að vinna 115-100 útisigur á Brooklyn Nets. Pau Gasol skoraði 16 stig og Derrick Rose bætti við 15 stigum. Fred Hoiberg er því að byrja vel sem þjálfari Chicago Bulls. Brook Lopez skoraði 26 stig fyrir Brooklyn Nets og Andrea Bargnani var með 17 stig.

Reggie Jackson kom Detriot Pistons yfir 17 sekúndum fyrir leikslok þegar liðið vann 92-87 heimasigur á Utah Jazz og Detroit-liðið hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki sína. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2009 sem Detroit er með tvo fleiri sigra en töp. Andre Drummond var atkvæðamestur hjá Detroit með 18 stig og 10 fráköst.

CJ McCollum skoraði 37 stig og Damian Lillard var með 21 stig og 11 stoðsendingar þegar Portland Trail Blazers vann 112-94 heimasigur á New Orleans Pelicans. Pelicans-liðið var þar með fyrsta liðið til að tapa tveimur leikjum á tímabilinu en liðið lá á móti Golden State Warriors í fyrsta leik. Anthony Davis var með 25 stig og 10 fráköst fyrir New Orleans Pelicans.

Ricky Rubio skoraði 28 stig og gaf 14 stoðsendingar þegar Minnesota Timberwolves vann upp sextán stiga forskot í seinni hálfleik og vann 112-111 útisigur á Los Angeles Lakers. Kobe Bryant skoraði 24 stig úr 24 skotum en hann bætti met John Stockton með því að vera sá fyrsti sem spilar 20 tímabil með sama liðinu í NBA-deildinni.

Kevin Love var með 17 stig og 13 fráköst þegar Cleveland Cavaliers kom til baka eftir tap í fyrsta leik á móti Chicago Bulls og vann öruggan 106-76 útisigur á Memphis Grizzlies. LeBron James lét sér nægja tólf stig en  Richard Jefferson var næststigahæstur hjá Cavs með 14 stig. Zach Randolph og Marc Gasol skoruðu mest fyrir Grizzlieseða tólf stig hvor.

 

Chris Bosh skoraði 21 stig í sínum fyrsta leik síðan að hann veiktist í febrúar og Dwyane Wade bætti við 20 stigum í 104-04 sigri Miami Heat á Charlotte Hornets.

Blake Griffin var með 33 stig og Paul Pierce setti niður mikilvægt skot í lokin þegar Los Angeles Clippers vann 111-104 útisigur á Sacramento Kings. Chris Paul var með 18 stig og 11 stoðsendingar fyrir Clippers en hjá Kings-liðinu var DeMarcus Cousins atkvæðamestur með 32 stig og 13 fráköst.

Raymond Felton skoraði 18 stig og var einn af átta leikmönnum Dallas Mavericks með tíu stig eða meira þegar liðið vann 111-95 útisigur á Phoenix Suns. Dirk Nowitzki skoraði 9 af 11 stigum sínum í þriðja leikhluta þegar Dallas náði 27 stiga forystu.

Isaiah Thomas var með 27 stig og 8 fráköst þegar Boston Celtics vann 112-95 heimasigur á Philadelphia 76 ers í sínum fyrsta leik. Nýliðinn Jahlil Okafor skoraði 26 stig fyrir Philadelphia-liðið.



Öll úrslitin úr NBA-deildinni í nótt:

Orlando Magic - Washington Wizards  87-88

Boston Celtics - Philadelphia 76ers 112-95

Brooklyn Nets - Chicago Bulls 100-115

Detroit Pistons - Utah Jazz 92-87

Miami Heat - Charlotte Hornets 104-94

Toronto Raptors - Indiana Pacers 106-99

Houston Rockets - Denver Nuggets 85-105

Memphis Grizzlies - Cleveland Cavaliers 76-106

Milwaukee Bucks - New York Knicks 97-122

Oklahoma City Thunder - San Antonio Spurs 112-106

Phoenix Suns - Dallas Mavericks 95-111

Portland Trail Blazers - New Orleans Pelicans 112-94

Sacramento Kings - Los Angeles Clippers 104-111

Los Angeles Lakers - Minnesota Timberwolves 111-112



Hér fyrir neðan eru myndbönd frá nóttinni í NBA-deildinni.



NBA

Tengdar fréttir

NBA: Curry byrjaði nýtt tímabil á 40 stiga leik | Myndbönd

Hvernig byrjar maður næsta tímabil eftir að hafa unnið sinn fyrsta meistaratitil og verið kosinn besti maður NBA-deildarinnar? Stephen Curry var með fyrirmyndar frammistöðu í nótt þegar hann skoraði 40 stig þegar meistarar Golden State Warriors byrjuðu tímabilið á sigri.

Kobe setur met í kvöld

Það er fastlega búist við því að Kobe Bryant verði í byrjunarliði LA Lakers í nótt gegn Minnesota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×