Körfubolti

Harden fór á kostum í fjórða sigri Rockets í röð

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Skeggið á Harden þykir til fyrirmyndar.
Skeggið á Harden þykir til fyrirmyndar. Vísir/Getty
James Harden og félagar í Houston Rockets eru heldur betur mættir til leiks í NBA-deildinni en Harden setti niður 46 stig í tíu stiga sigri á Los Angeles Clippers í nótt en þetta var fjórði sigur Rockets í röð.

Eftir að hafa tapað fyrstu þremur leikjum tímabilsins hafa Rockets unnið fjóra leiki í röð, þar á meðal gegn Oklahoma City Thunder og Los Angeles Clippers sem munu líklegast berjast um efstu sætin í Vesturdeildinni við Rockets.

Eftir að hafa sett 43 stig gegn Sacramento Kings í gær fylgdi Harden því með 46 stigum í nótt en liðsfélagi hans, Dwight Howard, bauð upp á tröllatvennu með 20 stig og 20 fráköst.

Leikmenn Los Angeles Clippers söknuðu greinilega leikstjórnandans Chris Paul í leiknum en Blake Griffin var stigahæstur í liðinu með 35 stig ásamt því að taka 11 fráköst.

Stephen Curry reynir hér að stela boltanum gegn Rajon Rondo án árangurs.Vísir/getty
Meistararnir í Golden State Warriors virðast einfaldlega vera óstöðvandi þessa dagana en þeir unnu áttunda leik sinn í röð í gær með níu stiga sigri á Sacramento Kings, 103-94.

Kom ekki að sök að Rajon Rondo, leikmaður Sacramento, hafi náð þrefaldri tvennu með 14 stig, 15 stoðsendingar og 12 fráköst.

Stephen Curry, skotbakvörður liðsins, hitti óvenju illa úr þriggja stiga skotum í leiknum en hann hitti aðeins úr 2 skotum af 10 en liðsfélagar hans björguðu honum fyrir horn enda hefur hann bjargað liðsfélögum sínum margoft.

Þá unnu Atlanta Hawks sjöunda leikinn í röð í nótt gegn Washington Wizards 114-99 en leikmenn liðsins hafa heldur betur svarað gagnrýnisröddunum sem heyrðust eftir tap í fyrsta leik liðsins á tímabilinu.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af bestu tilþrifunum úr leikjum kvöldsins ásamt því besta úr leik James Harden gegn Los Angeles Clippers og leik Andrew Wiggins gegn Chicago Bulls.

Úrslit gærkvöldsins:

Minnesota Timberwolves 102-93 Chicago Bulls

Orlando Magic 105-97 Philadelphia 76ers

Washington Wizards 99-114 Atlanta Hawks

New Orleans Pelicans 98-107 Dallas Mavericks

Brooklyn Nets 86-94 Milwaukee Bucks

Charlotte Hornets 94-114 San Antonio Spurs

Memphis Grizzlies 79-89 Utah Jazz

Golden State Warriors 103-94 Sacramento Kings

Houston Rockets 109-105 Los Angeles Clippers

Bestu tilþrif gærkvöldsins: Frábærar frammistöður hjá Harden og Wiggins:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×