„Ef Young er United-leikmaður þá er ég Kínverji“ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. nóvember 2015 14:45 Young fékk tiltal frá dómaranum í leiknum gegn CSKA Moskvu. Vísir/Getty
Roy Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United, var ekki hrifinn af frammistöðu Ashley Young í leik United gegn CSKA Moskvu í Meistaradeild Evrópu í fyrrakvöld. Young reyndi að fiska vítaspyrnu í leiknum en það er ekki í fyrsta skiptið sem hann verður uppvís að leikaraskap á knattspyrnuvellinum. „Ef að Ashley Young er United-leikmaður þá er ég Kínverji. Hann er algjörlega til skammar,“ sagði Keane sem hefur það orð á sér að vera mikill harðjaxl.Sjá einnig: Rooney endaði 404 mínútna bið og tryggði United sigur „Hinir leikmennirnir þurfa að grípa í taumana. Svona hegðun á ekki að vera liðin hjá Manchester United. Það er eitt að rétta út fótinn en að taka svona kollhnís eins og hann gerði er algjörlega til skammar.“ „Að láta svona einu sinni eða tvisvar eru mistök. En hann hefur gert þetta níu eða tíu sinnum og hann gerði þetta líka hjá fyrri félögum.“ Paul Scholes, fyrrum samherji Keane hjá United, tók undir orð hans. „Ashley verður að hætta þessu. Hann veit það best sjálfur en þetta er vani hjá honum og hann á erfitt með að láta af honum.“ „Hann er virkilega góður leikmaður og þarf ekki að grípa til svona úrræða. En ég held að þetta sé bara orðið hluti af honum.“
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Willum hrifinn af norska módelinu Sport Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Fleiri fréttir Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ „Minn stærsti draumur“ Uppgjör og viðtöl: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Uppgjör: Stjarnan-Þór/KA 3-2: Stjörnukonur aftur á sigurbraut Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar „Fólk meiðist og aðrir þurfa að taka við“ Virkar eins og forfallakennari Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Mbappé klár í slaginn en Spánverjar líklegri til sigurs Bróðir Yamals slær í gegn á HM Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Rice búinn að hrista af sér magakveisuna og getur byrjað gegn Argentínu „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Sjá meira