Körfubolti

R. Kelly neglir niður silkimjúkum þristi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
R. Kelly á leiknum í nótt.
R. Kelly á leiknum í nótt. Vísir/Getty

Rapparinn R. Kelly flutti bandaríska þjóðsönginn fyrir leik New Jersey Nets og Atlanta Hawks í NBA-deildinni í nótt. Það var þó upphitun hans sem vakti mesta athygli.

Kelly er greinilega liðtækur í boltanum því hann setti niður einn silkimjúkan þrist, jakkafataklæddur og með vindil í kjaftinum.

Líklega hefur hann þurft nokkrar tilraunir en skotið sem fór niður rataði á Twitter-síðu Nets og má sjá hér fyrir neðan. Þar fyrir neðan má svo sjá lokanóturnar í flutningi hans á bandaríska þjóðsöngnum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×