Ráðherra telur erfiða stöðu á húsnæðismarkaði ekki endilega ástæðuna fyrir landflótta ungs fólks

Mikil umræða hefur verið síðustu misseri um slæma stöðu á húsnæðismarkaði. Erfitt er fyrir ungt fólk að fjárfesta í húsnæði þar sem fáir eiga nokkrar milljónir fyrir útborgun í íbúð.
Sú staða fléttast saman við stöðuna á leigumarkaði þar sem leiguverð er afar hátt og framboðið mun minna en eftirspurn. Ástandið endurspeglast meðal annars í því að 25 prósent Íslendinga á þrítugsaldri býr enn hjá foreldrum sínum.
Húsnæðisfrumvörp haustþingsins ekki verið lögð fram
Húsnæðismálaráðherra hefur boðað sex húsnæðisfrumvörp á yfirstandandi haustþingi og spurði Steingrímu J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, út í frumvörpin þar sem ekkert þeirra hefur verið lagt fram á þingi.
Sagði hann ekki nóg að halda fjölskipaða ráðherrafundi út í bæ ef ekkert gerðist svo í málaflokknum. Spurði hann hvort ráðherrann teldi eina ástæðuna fyrir landflótta ungs fólks vera vegna þess að „húsnæðismálin eru í þvílíkum ólestri,“ eins og Steingrímur orðaði það. Þá innti hann Eygló eftir því hvort ágreiningur væri um frumvörpin eða hvort hún hefði einfaldlega gefist upp á málinu.
Eygló sagði að unnið væri hörðum höndum að því að klára frumvörpin en lykilatriði vær að ná sátt um þau. Hún sagði víðtækt samráð felast í vinnunni við þau en aðilar vinnumarkaðarins og sveitarfélögin koma meðal annars að henni.
Húsnæðismarkaðurinn verri í öðrum löndum að mati ráðherra
Hvað varðaði svo spurninguna um hvort að brottflutningar ungs fólks tengdist húsnæðismálum sagði ráðherrann á að staðan á húsnæðismarkaði á Norðurlöndunum og Bretlandi væri á mörgum stöðum verri en hér á landi.
„Þannig að ég held að við verðum að horfa til einhverra annarra þátta en húsnæðismála hvað það varðar. Síðan vil ég líka benda á að menn hafa rætt um áhyggjur vegna möguleika ungs fólks á að taka lán. Það tengist að vísu náttúrulega neytendalánalöggjöfinni sem háttvirtur þingmaður stóð að og talaði fyrir á sínum tíma sem hefti mjög möguleika fólks á að fá lán.“
Tengdar fréttir

IKEA kynnir ódýr einingahús fyrir Íslendingum
IKEA og Skanska hafa í tuttugu ár byggt blokkir, parhús og raðhús sem eru um helmingi ódýrari en hefðbundin hús. Hagkvæmni í að byggja alltaf eins hús.

Stærri íbúðir eru að detta úr tísku
Eftirspurn eftir minni íbúðum hefur aukist töluvert og er fermetraverð þeirra orðið 50 prósentum hærra en stærra húsnæðis.

„Íslensk heimili í alþjóðlegum samanburði í tiltölulega öfundsverðri stöðu“
Skuldastaða heimilanna hefur batnað hratt að undanförnu og telst ekki lengur há í alþjóðlegum samanburði.

Telur GAMMA-sjóði hafa jákvæð áhrif á leigumarkaðinn
Forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans telur að sjóðir á borð við GAMMA hafi ýtt undir fasteignaverð en stutt við leigumarkaðinn.

Boða aðgerðir á húsnæðismarkaði
Búast má við því að byggingarreglugerð verði breytt og hugmyndasamkeppni sett af stað um hagkvæmar húsnæðislausnir, til að lækka byggingarkostnað. Þetta kom fram á fjölmennum samráðsfundi stjórnvalda um aðgerðir á sviði húsnæðismála.

Fólk með lágar tekjur líklegra til að búa í leiguhúsnæði
7,9 prósent 25-34 ára bjuggu í skuldlausu eigin húsnæði árið 2014.