Körfubolti

San Antonio gerði grín að Philadelphia | Úrslitin í nótt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tony Parker og félagar léku sér að Philadelphia í nótt.
Tony Parker og félagar léku sér að Philadelphia í nótt. vísir/getty
Níu leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt.

San Antonio Spurs sýndi Philadelphia 76ers enga miskunn og vann 51 stigs sigur, 68-119, í leik liðanna í Wells Fargo Center í Philadelphia.

Þetta er fimmti versti ósigur í sögu Philadelphia en liðið hefur verið ævintýralega lélegt í vetur og aðeins unnið einn leik.

LaMarcus Aldridge var atkvæðamestur í liði San Antonio með 26 stig og níu fráköst en þjálfari liðsins, Gregg Popovich, hvíldi bæði Tim Duncan og Manu Ginobili í nótt. Þá var Kawhi Leonard veikur.

Phoenix Suns vann góðan sigur á Chicago Bulls á útivelli, 101-103.

Lengi vel benti fátt til þess að Phoenix myndi fá eitthvað út úr leiknum en þegar átta mínútur voru eftir var staðan 86-75, Chicago í vil. Leikmenn Phoenix neituðu þó að gefast upp og Mirza Teletovic tryggði þeim sigurinn með ótrúlegri flautukörfu.

Brandon Knight var stigahæstur í liði Phoenix með 21 stig en 17 af þessum stigum komu í 4. leikhluta. Pau Gasol var atkvæðamestur hjá Chicago með 22 stig og 10 fráköst.

Dirk Nowitzki og félagar í Dallas Mavericks gerðu góða ferð til New York og unnu sjö stiga sigur á heimamönnum í Knicks, 97-104.

Nowitzki fór fyrir sínum mönnum með 25 stig en Deron Williams kom næstur með 20 stig og sjö stoðsendingar.

Kristpas Porzingis var langstigahæstur hjá New York með 28 stig en hann hitti úr 13 úr 18 skotum sínum utan af velli.

Úrslitin í nótt:

Philadelphia 68-119 San Antonio

Chicago 101-103 Phoenix

New York 97-104 Dallas

Toronto 102-93 LA Lakers

Milwaukee 90-88 Portland

Minnesota 106-110 LA Clippers

New Orleans 93-111 Boston

Miami 103-114 Washington

Charlotte 104-84 Detroit

Teletovic tryggir Phoenix sigur á Chicago Rosaleg troðsla hjá Kevin Garnett Chris Paul og DeAndre Jordan leika sér
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×