Rafmagnslaust var Vestur-Skaftafellssýslu Aðalsteinn Kjartansson skrifar 7. desember 2015 20:31 Rafmagn datt fyrst út upp úr klukkan átta og svo fljótlega aftur. Sigöldulína 4 og Prestbakkalína 1 leysti út. Vísir/Valli
Rafmagnslaust varð í Vestur-Skaftafellssýslu út frá Prestbakka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. Sigöldulína 4 og Prestbakkalína 1 leysti út. Rafmagn datt fyrst út upp úr klukkan átta í kvöld en línan var spennusett aftur. Það leysti þó fljótlega út á nýjan leik og en klukkan níu var rafmagn komið á aftur. Þá hefur Breiðadalslína 1 milli Mjólkárvirkjunar og Breiðadals við Önundarfjörð verið tekin úr rekstri til að auka afhendingaröryggi rafmagns á norðanverðum Vestfjörðum. Norðanverðir Vestfirðir fá nú rafmagn frá vararafstöð í Bolungarvík. Að öðru leyti hafa ekki orðið teljandi vandræði í meginflutningskerfi Landsnets en rafmagnstruflanir hafa orðið hjá dreifiveitu á Suðurlandi. Viðgerðar- og viðbragðshópar frá Landsneti eru nú í startholunum á Geithálsi, Brennimel, Kolviðarhól, Sultartanga og víðar á Suðurlandi, í Fljótsdal og víðar á Austurlandi og í Varmahlíð í Skagafirði. Einnig er Landsnet í samstarfi um fyrsta viðbragð við dreifiveitur og verktaka auk þess sem raforkuframleiðendur, veitur og stórnotendur eru einnig með aukinn viðbúnað vegna óveðursins. Þá er fylgst grannt með gangi mála í stjórnstöð Landsnets í Reykjavík og einnig er maður frá Landsneti staðsettur í upplýsingamiðstöð Almannavarna í Skógarhlíð.Uppfært klukkan 21.08 eftir að rafmagn komst aftur á.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Fleiri fréttir Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Sjá meira