Körfubolti

Ótrúleg sigurkarfa Memphis frá miðju vallarins

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Matt Barnes var hetja Memphis Grizzliez í nótt þegar hann tryggði sínu liði ótrúlegan eins stigs sigur, 93-92, á útivelli gegn Detroit Pistons í NBA-deildinni í körfubolta.

Detroit var með boltann þegar tíu sekúndur voru eftir en þá voru fjórar sekúndur eftir af skotklukkunni.

Sjá einnig:Harden sýndi sitt rétta andlit í sigri Houston

Marcus Morris reyndi erfitt skot sem geigaði og stóra manninum Andre Drummond tókst ekki að blaka boltanum ofan í.

Barnes hirti frákastið undir eigin körfu þegar fimm sekúndur voru eftir og tók á sprett með boltann. Hann sá að hann komst ekkert mikið lengra en fram að miðju vallarins og stökk því upp þar og skaut.

Boltinn söng í körfunni þegar rétt rúm ein sekúnda var eftir af leiknum en Detroit náði ekki að nýta sér tímann sem var eftir og var þetta því sigurkarfan.

Þessa ótrúlegu körfu má sjá í spilaranum hér að ofan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×