Barcelona vann í dag heimsmeistarakeppni félagsliða þegar liðið bar sigur úr býtum, 3-0, á River Plate í úrslitaleiknum í Japan.
Lionel Messi kom Barca yfir tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks og var staðan 1-0 í hálfleik.
Luis Suarez var maðurinn í síðari hálfleiknum en hann skoraði tvö mörk, á 49. mínútu og á 68. mínútu.
Sigur þeirra var aldrei í hættu og náði Barcelona því að vinna fimm stóra titla á árinu 2015.
