Bankarán í Borgartúni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. desember 2015 13:35 Frá Landsbankanum í Borgartúni í dag. Vísir/Vilhelm
Tveir menn frömdu vopnað rán í útibúi Landsbankans í Borgartúni skömmu fyrir klukkan hálf tvö í dag. Annar maðurinn var vopnaður skammbyssu en hinn vopnaður hnífi. Leit hefur staðið yfir að mönnunum síðan en enginn verið handtekinn að sögn Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir höfðu á brott með sér fjármuni en forsvarsmenn Landsbankans segja að upphæðin sé óveruleg. Mennirnir flúðu á hvítum sendiferðabíl sem fannst í Barmahlíð á þriðja tímanum. Lögreglan hefur birt myndir af mönnunum tveimur og óskar aðstoðar.Umfangsmikil leit lögreglu stendur yfir í Öskjuhlíð og vaktar lögregla alla vegi til og frá svæðinu.Sjá einnig:Vopnuð rán fáheyrð hér á landi Útibúi Landsbankans var lokað eftir ránið og verður áfram lokað á morgun. Þá var viðskiptavinum og starfsfólki boðin áfallahjálp. Engin slys urðu á fólki en öryggisgæsla var aukin í útibúum Landsbankans eftir ránið. Samkvæmt sjónvarvottum unnu mennirnir verulegar skemmdir á innanstokksmunum bankans. Þá mun gjaldkeri hafa verið hristur og mennirnir öskrað að um rán væri að ræða. Sjónarvottar segja mennina hafa verið með eitthvað fyrir vitum sér en ber ekki saman um hvort trefla, lambúshettur eða annað hafi verið að ræða. Lögregla hefur unnið að því að að taka skýrslur af vitnum að ráninu. Leit að mönnunum stendur enn yfir.Bankarán í beinni í Borgartúninu!!Posted by Guðmundur Sveinn Einarsson on Wednesday, December 30, 2015
Tengdar fréttir Steinþór í Landsbankanum: Mildi að enginn hafi slasast Ránið var framið um tuttugu mínútur yfir eitt og var bankastjórinn mættur á svæðið rúmum hálftíma síðar þegar Vísir náði af honum tali. 30. desember 2015 14:25 Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Sjá meira
Steinþór í Landsbankanum: Mildi að enginn hafi slasast Ránið var framið um tuttugu mínútur yfir eitt og var bankastjórinn mættur á svæðið rúmum hálftíma síðar þegar Vísir náði af honum tali. 30. desember 2015 14:25