Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Eiður Þór Árnason skrifar 25. september 2026 00:42 Fjöldi yfirgaf salinn og mátti meðal annars sjá sæti fulltrúa Palestínu standa auð. AP Fulltrúi Íslands sat áfram á fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tók til máls. Fulltrúar fjölda ríkja gengu úr salnum á fimmtudag í mótmælaskyni en stríðsrekstur Ísraels á Gasa hefur verið harðlega gagnrýndur. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ekki í salnum þegar atvikið átti sér stað.
Þetta segir Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Hún hafi þess í stað verið á viðburði til stuðnings Palestínu-flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) sem fram fór á sama tíma. Klippa: Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum var í sæti Íslands í sal allsherjarþingsins og sat þar áfram, ásamt fulltrúum annarra norrænna ríkja, að sögn Ingileifar. Hún nefnir umræddan fulltrúa ekki á nafn í svari sínu til fréttastofu. Utanríkisráðuneytið vill ekki nafngreina fulltrúann sem sat áfram*. „Ísland, eins og önnur norræn ríki, hefur sæti landsins ávallt mannað í umræðum í ráðherraviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna,“ sagði í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Fjöldi yfirgaf salinn og mátti meðal annars sjá sæti fulltrúa Palestínu standa auð.Ap/Yuki Iwamura Ráðherravika allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna stendur nú yfir. Aðstoðarmaður utanríkisráðherra segir að Þorgerður hafi jafnframt tekið þátt í ráðherraviðburði um tveggja ríkja lausnina fyrr um daginn en markmiðið með henni er að koma á friði í samskiptum Ísraels og Palestínu. Benjamín Netanjahú lét sér fátt um finnast þegar fulltrúar ríkja yfirgáfu salinn og kallaði þá siðferðislega hugleysingja. Ásakanir um þjóðarmorð „stærsta lygi aldarinnar“ Netanjahú sagði ásakanir um þjóðarmorð Ísraelsmanna á Gasa vera „stærstu lygi aldarinnar“ í ögrandi ræðu frammi fyrir hálftómum sal allsherjarþingsins. Þegar hann steig upp í ræðustól brugðust sumir við með fagnaðarlátum á meðan aðrir púuðu og gengu út, að sögn AP-fréttaveitunnar. Meirihluti sæta hafi verið auður þegar hann flutti ræðu sína. Netanjahú á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.Ap/Seth Wenig „Ef það eru einhverjir aðrir siðferðislegir hugleysingjar sem hafa ekki enn yfirgefið salinn, vinsamlegast gerið það núna,“ sagði Netanjahú. Hann hækkaði síðan róminn og sagði árásir Ísraels á Íran „hafa verið ein auðveldasta ákvörðun sem ég hef nokkurn tíma þurft að taka.“ Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, neyddist til að ávarpa Sameinuðu þjóðirnar með myndskeiði eftir að Bandaríkin synjuðu honum aftur um vegabréfsáritun og komu þannig í veg fyrir að hann gæti sótt allsherjarþingið. Fréttin hefur verið uppfærð. *Í upphaflegri útgáfu hennar voru tveir fulltrúar úr fastanefnd Íslands gagnvart mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf nafngreindir. Talsmaður utanríkisráðuneytisins segir að þeir hafi ekki verið á staðnum og að ráðuneytið nafngreini ekki fulltrúann sem sat undir ræðu Netanjahú.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Sameinuðu þjóðirnar Tengdar fréttir Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Tugir fulltrúa ríkja á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gengu úr salnum þegar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels steig í ræðustól í New York í dag. Forsætisráðherrann lét sér fátt um finnast og kallaði fulltrúana siðferðislega hugleysingja. 24. september 2026 21:08 Mest lesið „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira
Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Tugir fulltrúa ríkja á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gengu úr salnum þegar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels steig í ræðustól í New York í dag. Forsætisráðherrann lét sér fátt um finnast og kallaði fulltrúana siðferðislega hugleysingja. 24. september 2026 21:08