Ófremdarástand um miðja næstu viku vegna kjúklinga Óli Kristján Ármannsson skrifar 25. apríl 2015 07:00 Kjúklingi pakkað. Vaxtarhraði kjúklinga er mikill og framleiðsla hröð. Fréttablaðið/HARI
Kjúklingabændur bjuggu sig undir yfirvofandi verkfall dýralækna með því að auka slátrun. Magnús Huldar Ingþórsson, framleiðslustjóri hjá Reykjagarði, segist búast við að ástandið verði orðið slæmt á kjúklingabúum um miðja næstu viku vegna plássleysis þegar ekki fæst undanþága til slátrunar. Framleiðsluferlið er þannig að við bætast um og yfir 100 þúsund kjúklingar í viku hverri. Samkvæmt gögnum Hagstofunnar komu hér á landi úr eggi að jafnaði rúmlega 427 þúsund ungar í hverjum mánuði í fyrra. Þá vaxa fuglarnir hratt og verða plássfrekari. Hildur Traustadóttir, framkvæmdastjóri félaga eggja- og kjúklingabænda, segir stöðuna flókna, því ekki megi slátra fuglum nema að dýralæknir sé viðstaddur, hvort heldur sé um að ræða til manneldis eða vegna grisjunar í búunum sjálfum.Hildur Traustadóttir„Vandamálið er að fuglinn stækkar fljótt í húsinu og þá eru menn líka að brjóta lögin því ekki má hafa þá svona stóra inni. Svo eykst líka sjúkdómahætta gríðarlega,“ segir hún. „Þetta er bara pattstaða og engin lausn í sjónmáli.“ Hildur segir bændur hafa sótt um leyfi til undanþága til að fá að slátra en fengið synjun hingað til. Hún vonast þó til þess að undanþága fáist til að létta á húsunum. Þá auki vanda framleiðslunnar að bændur fái ekki heldur leyfi til að flytja inn stofna sína sem komi til með að raska framleiðslunni þegar fram í sækir. „Það stendur til að flytja inn stofna og átti að flytja inn stofna í fyrstu viku maí. Og fáist ekki leyfi fyrir því þá verður foreldrafuglalaust eftir svona hálft ár eða svo. Það er líka vandamál.“ Magnús H. Ingþórsson, hjá Reykjagarði, segir ljóst að framleiðsluhús hænsnabænda yfirfyllist næstu dagana. „Við undirbjuggum okkur hins vegar undir þetta verkfall og vorum ekki með áætlaða slátrun í byrjun þessarar viku, en ástandið fer að verða slæmt hjá okkur með tilliti til dýraverndunarsjónarmiða strax um miðja næstu viku.“ Magnús segir að framleiðendum og bændum komi á óvart að kjarabarátta dýralækna sé rekin af slíkri hörku að bitni á þriðja aðila sem ekki sé aðili að deilunni. „Að menn gangi það langt að brjóta lög og reglur sem þeir sjálfir eiga að sjá um að séu virtar,“ segir hann og vísar til þess að í gær hafi ekki enn fengist heimild frá undanþágunefnd til slátrunar fugla. „Ég hef áhyggjur af trúverðugleika þeirra þegar þeir koma aftur til starfa.“ Ágúst AndréssonÁgúst Andrésson, formaður Félags sláturleyfishafa, segir verkfall dýralækna fyrsta kastið koma harðast niður á kjúklingaræktinni, en framleiðsluhraði sé einnig svo mikill í svínarækt að sú grein þoli ekki langa sláturtöf. Hins vegar sé ekki sláturtíð í sauðfé fyrr en næsta haust og nautgripir þoli betur bið en svín og kjúklingur. „Þetta bítur ekki á bændur í þeim geirum á næstunni, en þetta mun sjálfsagt bitna á neytendum,“ segir hann. Þess verði ekki langt að bíða þar til nautakjöt verður upp urið í verslunum og hættir að fást á veitingastöðum. „En maður óttast það óneitanlega að þetta verkfall hafi áhrif á velferð dýranna,“ bætir Ágúst við. „Þótt menn segi að það eigi ekki að hafa áhrif, þá finnst mér menn gera lítið úr því sem gert er til að gæta að velferð dýra, ef hægt er að taka sig bara til og fara í verkfall.“Charlotta OddsdóttirUndanþága gefin vegna brjóstamjólkurinnflutnings Undanþágunefnd Dýralæknafélagsins hafði um miðjan dag í gær, frá því verkfall hófst á mánudag, ekki borist beiðnir um slátrun á kjúklingum á grundvelli dýraverndarsjónarmiða, segir Charlotta Oddsdóttir, dýralæknir og talsmaður félagsins. Beiðnirnar hafi snúið að því að framleiðendur hafi viljað koma fuglum sínum í sláturhús og á markað. „En við bendum á að dýraeigenda sé að tryggja velferð dýra sinna og að bændur hafi það úrræði að aflífa, til dæmis til þess að grisja í húsum sínum.“ Slíkar beiðnir hafi ekki borist, en sé grunur um að brotið sé gegn velferð dýra, þá sé rétta ferlið að tilkynna um slíkt til Matvælastofnunar, sem svo myndi óska eftir því að hægt væri að setja starfsmann í að kanna málið. Undanþágur segir Charlotta hins vegar að hafi verið veittar, svo sem til innflutnings á brjóstamjólk fyrir fyrirbura og nýbura hér á landi. „Slíkan innflutning þarf alltaf að samþykkja. Allt sem varðar einhverja neyð er vissulega tekið alvarlega og afgreitt eins og því ber.“
Verkfall 2016 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira