Bakar til góðs næsta sólarhringinn Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 17. október 2026 12:01 Lilja Katrín ætlar að baka ýmislegt á þeim 24 klukkutímum sem framundan eru. vísir/einar Núna klukkan tólf hófst svokallað bakstursmaraþon en fjölskylda úr Kópavogi ætlar að baka næstu 24 klukkutímana til styrktar góðu málefni. Yfirbakarinn hvetur fólk til að kíkja við.
Fjölmiðlakonan Lilja Katrín Gunnarsdóttir sem sér um Bítið á Bylgjunni er konan sem ætlar að baka í sólarhring með fjölskyldu sinni og er tilgangurinn að safna fjármunum fyrir Örninn minningarsjóð. „Þetta verður þá í þriðja sinn sem við fjölskyldan höldum svona maraþon. Fyrstu tvö voru heima hjá okkur í Kópavogi. Nú erum við að færa út kvíarnar, verðum eða erum í sýningarsal HTH. Margir þekkja Ormsson í Lágmúla. Þau voru svo góð að lána okkur aðstöðuna, þar eru fullbúin eldhús þannig að við erum að prófa að fara með þetta út fyrir veggi heimilisins, sjáum hvernig það fer allt saman.“ Verkefnið sé einfaldlega orðið of stórt og rúmist ekki inni á heimili Lilju lengur. Hvernig fer þetta fram? Þið bakið og fólk kaupir veitingar eða styrkir ykkur eða hvað? „Í rauninni þarftu ekki að gera neitt nema bara mæta og fá þér köku. Þú mátt bara koma og fá þér köku og kaffi og setjast niður og spjalla. Það er bara í góðu lagi. Þú þarft ekkert að styrkja. Við erum ekki að telja neitt í rauninni. En ef fólk vill styrkja málefnið þá erum við með posa, það eru líka upplýsingar um reikningsnúmer þannig að okkur þykir voða vænt um peningastyrkina sem renna þá bara beint til Arnarins.“ Á boðstólum verða vöfflur, pönnukökur og væntanlega skúffukaka, jafnvel brauð og kanelsnúðar. „Við héldum fyrst bakstursmaraþon 2016. Þá söfnuðum við fyrir Kraft og þá söfnuðum við rúmri hálfri milljón. Þá hélt ég að það kæmu svona tíu. Svo héldum við þetta aftur í fyrra. Þá hélt ég mögulega að það kæmu tuttugu manns en þá söfnuðum við sko rúmum tveim milljónum sem fór fram úr okkar, sko, villtustu draumum.“ Hún hvetur fólk til að kíkja við. „Það er engin kvöð og engin skylda að gera yfirhöfuð nokkurn skapaðan hlut nema bara setjast niður og fá sér kaffibolla og það sem var svo fallegt í fyrra var að það kom fullt af fólki sem hefur í rauninni engan stað til þess að fara á um helgar til þess að hitta mann og annan og sýna sig og sjá aðra, er kannski svolítið eitt, kom til okkar, fékk sér kaffi og kökur, hitti annað fólk og það eiginlega held ég að hafi verið það dýrmætasta af öllu, þannig að ég hvet bara sem flesta til þess að koma og þið tapið ekkert á því, þið bara græðið.“
Matur Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Sjá meira