

Sá á kvölina sem á völina
Það er undarlegt hvað karlar virðast eiga auðvelt með að koma sér á framfæri og fá stuðning karla sem kvenna þegar þeir bjóða sig fram til ábyrgðarstarfa. Það hefur vakið furðu mína að karlar séu formenn þriggja stórra stéttarfélaga þar sem konur eru í meirihluta félagsmanna. Konur þurfa að spyrja sig krefjandi spurninga og líta í eigin barm ef þær vilja stuðla að jafnri stöðu kynjanna. Hvað veldur því að konur kjósa síður konur til áhrifastarfa og þegar það gerist þá er það enn þá undantekningin sem sannar regluna. Treysta konur ekki kynsystrum sínum til góðra verka, að láta hlusta á sig, að vera ákveðnar og rökfastar og að vera í forsvari á opinberum vettvangi?
Að sama skapi er það umhugsunarefni ef konur sækjast síður eftir áhrifastöðum og finna ekki fyrir sambærilegum stuðningi og karlar. Formaður Félags grunnskólakennara hefur verið karl fyrir utan eina undantekningu í marga áratugi. Var staðan þannig að engin kona bauð sig fram til formennsku þegar kosið var síðast um formann hjá Félagi hjúkrunarfræðinga, grunnskólakennara og leikskólakennara þar sem konur eru í kringum 90-99% félagsmanna? Það er þá enn ein birtingarmyndin á ójafnri stöðu kynjanna á 21. öldinni og er valdletjandi fyrir konur og særir mitt femíníska hjarta.
Á herðum kvenna
Fjölmiðlar eru yfirfullir af körlum sem viðmælendum, greinahöfundum og álitsgjöfum. Konur þurfa að nota öll tækifæri sem gefast til að auka sýnileika kvenna í fjölmiðlum og ein leið til þess er að kjósa konur til áhrifastarfa og að auka þannig möguleika á að rödd og viðhorf kvenna heyrist til jafns við hinn helminginn af mannkyninu. Þeir sem starfa á fjölmiðlum kvarta undan því að erfitt sé að fá konur í viðtöl og þarna kemur að okkur sjálfum, við þurfum að þora, vilja og geta eins og sungið var á kvennafrídaginn 1975. Það eru ekki góð skilaboð til samfélagsins og sér í lagi ungu kynslóðanna, að konur sjáist og heyrist ekki til jafns á við karla í fjölmiðlum og að þær séu ekki jafn virkar á öllum sviðum samfélagsins.
Förum vel með kosningarétt okkar og hugum vel að því hvaða afleiðingar val okkar hefur fyrir ímynd kvenna og valdastöðu kvenna innan samfélagsins og jafnari stöðu kynjanna. Konur, spyrjið ykkur næst þegar þið notið kosningarétt ykkar hvort, þegar til lengri tíma er litið, atkvæði ykkar stuðli að framþróun í jafnréttismálum kynjanna. Samtakamáttur kvenna og barátta fyrir kynjajafnrétti mun hvíla fyrst og fremst á herðum kvenna við að efla virðingu og völd kvenna.
Skoðun

Stuðningur við nýsköpun í menntun: Leið að betra mati
Bogi Ragnarsson skrifar

Þegar illfygli leiðir stórmennskubrjálæðing
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Afruglari
Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Þjóðkirkja á réttri leið
Þórður Guðmundsson skrifar

Staðreyndir um einfaldara regluverk
Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar

Við þurfum hagkvæmu virkjunarkostina
Gunnar Guðni Tómasson skrifar

Falin tækifæri til náms
Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Gervigreind í námi: 5 lykilskref fyrir öryggi nemenda
Björgmundur Guðmundsson skrifar

Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz
Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson skrifar

“Jákvæð viðbrögð” um veiðigjaldið?
Heimir Örn Árnason skrifar

Skattgreiðendur látnir borga brúsann
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Nokkur orð um Kúbudeiluna og viðskiptabannið
Gylfi Páll Hersir skrifar

Ráðherrar með reiknivél og leyndarhyggju
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Gróf misbeiting illa fengins valds
Örn Sigurðsson skrifar

Að sækja gullið (okkar) grein 2
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir
Davíð Aron Routley skrifar

Pólítískt hugrekki
Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar

Vísir að lægri orkureikningi
Einar Vilmarsson skrifar

Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld
Ögmundur Jónasson skrifar

Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur
Margrét Kristín Blöndal skrifar

Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt
Ian McDonald skrifar

Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar?
Bogi Ragnarsson skrifar

Vönduð vinnubrögð?
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð
Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar

Veitingastaðir eru ekki kjarnorkuver
Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

Nýr vegvísir Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna
Clara Ganslandt skrifar

Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar
Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar

Blaður 35
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Kaldar kveðjur frá forsætisráðherrra til ferðaþjónustunnar
Pétur Óskarsson skrifar