Þetta kom mikið á óvart Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. ágúst 2015 06:30 Hrafnhildur varð í gær fyrsta íslenska konan til að komast í úrslit á heimsmeistaramóti í 50 metra laug. fréttablaðið/valli
Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir gleymir gærdeginum eflaust ekki í bráð. Hrafnhildur er þessa dagana stödd í Kazan í Rússlandi þar sem heimsmeistaramótið í sundi fer fram. Hún hóf gærdaginn á því setja nýtt Íslandsmet í 100 metra bringusundi í undanrásunum og náði um leið A-lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Ríó í Brasilíu á næsta ári. Og hún fylgdi því svo eftir með því að tryggja sér sæti í úrslitum síðdegis. Frábær árangur hjá Hrafnhildi sem var að vonum sátt með afrakstur dagsins þegar hún ræddi við Fréttablaðið í gærkvöldi. „Þetta kom mikið á óvart og ég er mjög ánægð með þetta og hefði ekki getað beðið um neitt meira,“ sagði Hrafnhildur. „Ég hugsaði ekkert mikið út í þetta. Ég var búin að æfa eins vel og ég gat og ákvað bara að hafa gaman af þessu. Og það gekk allt upp.“Var mjög stressuð Hrafnhildur synti á 1:06,87 mínútum í undanrásunum. Gamla Íslandsmetið hennar, sem hún setti á Smáþjóðaleikunum í júní, var 1:08,07 mínútur en það féll með látum í Kazan í gær. Þessi tími Hrafnhildar var sá sjötti besti í undanrásunum. Eins og áður sagði náði Hrafnhildur einnig A-lágmarki fyrir Ólympíuleikana en hún er nú búin að tryggja sér þátttökurétt í þremur greinum í Ríó; 100 og 200 metra bringusundi og 200 metra fjórsundi. Í undanúrslitunum synti Hrafnhildur í fyrri riðlinum og kom í bakkann á 1:07,11 mínútum. Hún viðurkennir að það hafi verið erfitt að fylgjast með seinni riðlinum en aðeins átta sekúndubrotum munaði á Hrafnhildi og Taylor McKeown frá Ástralíu sem fékk níunda besta tímann. Átta bestu tímarnir fóru í úrslit. „Ég var mjög stressuð. Ég sá þær allar koma í bakkann á svipuðum tíma og ég vissi ekki hvort ég væri komin áfram eða ekki,“ sagði Hrafnhildur og bætti við: „Seinna sundið var aðeins hægara en sundið um morguninn. En það dugði til að komast inn í úrslitin.“Sögulegur árangur Þessi árangur Hrafnhildar er sögulegur en þetta er í fyrsta sinn sem íslensk sundkona kemst í úrslit á heimsmeistaramóti í 50 metra laug. Hún segir að sú staðreynd geri þetta ennþá sérstakara. „Já, það er mjög skemmtilegt. Það er gaman að vera komin í úrslit á svona risastóru móti. Ég gleymi þessu ekki á næstunni,“ sagði Hrafnhildur sem viðurkennir að hún eigi stundum í vandræðum með að muna tíma og annað sem tengist sundferlinum en hún sé með gott fólk í kringum sig sem sjái um þessa hluti. Stóra stundin er svo í dag en úrslitasundið hefst klukkan 16:07 að íslenskum tíma, en 18:07 að staðartíma. Hrafnhildur segir að undirbúningurinn fyrir úrslitasundið verði hefðbundinn. „Undirbúningurinn verður ekkert öðruvísi en hann hefur verið. Ég tek því rólega fyrri partinn, sef út, syndi eitthvað og kýli svo á þetta um kvöldið,“ sagði Hrafnhildur, en er hún með eitthvert ákveðið sæti í huga á morgun? „Það er engin leið nema upp þegar maður er í áttunda sæti. Ég fer í úrslitin með það markmið að gera eins vel og ég get og hafa gaman af þessu,“ sagði þessi öfluga sundkona sem fagnaði 24 ára afmæli sínu á sunnudaginn.Eldroðnaði í afmælissöngnum „Liðið kom mér á óvart og var búið að tala við matreiðslufólkið á hótelinu og það kom með köku handa mér. Þetta kom mér á óvart og ég eldroðnaði í miðjum matsalnum þegar allir voru að syngja. En þetta var skemmtilegt.“ Hrafnhildur segir stemninguna í íslenska hópnum vera mjög góða en Ísland á fimm fulltrúa í Kazan. „Þetta er góður hópur og við vinnum vel saman og styðjum hvert annað,“ sagði Hrafnhildur sem er ekki eini íslenski keppandinn sem hefur gert það gott á HM. Á sunnudaginn setti Anton Sveinn McKee nýtt Íslandsmet í 100 metra bringusundi og í gær bætti Eygló Ósk Gústafsdóttir eigið Íslandsmet í 100 metra bringusundi um 64 hundraðshluta úr sekúndu. Anton og Eygló náðu auk þess bæði Ólympíulágmörkum.
Ólympíuleikar 2016 í Ríó Sund Mest lesið Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Handbolti Biður Dag afsökunar Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Danmörk vann gullið og Þjóðverjar Alfreðs fá silfur Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Fleiri fréttir „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Willum snýr aftur í hollenska boltann Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Biður Dag afsökunar Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki EM í dag: Úti er ævintýri og truflun frá Tona Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik „Ætla bara að vera stór og stoltur af þessu liði“ „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Enn og aftur erfiður Dagur gegn Króatíu „Helvíti dýrt í leik eins og þessum“ „Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ Tölfræðin á móti Króötum: Ómar nýtti öll skotin en aðrir fóru illa með dauðafærin Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Danmörk vann gullið og Þjóðverjar Alfreðs fá silfur Ísland - Króatía 33-34 | Of seint áhlaup og bronsið fer til Króatíu Eir bætti eigið Íslandsmet Mbappé bætti upp fyrir hrikalegt klúður Alcaraz yngstur til að klára alslemmuna í tennisnum Sigvaldi kemur inn fyrir Teit Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Allir trúa á brons í Herning Hjartað og andinn muni skila sigri Valieva sneri aftur á ísinn eftir fjögurra ára bann Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Gísli valinn í úrvalslið EM „Held og vona að Ísland taki bronsið“ Sér fyrir sér bronsverðlaun um hálsinn Hárkollan fauk af í miðjum bardaga Sjá meira