Martin sá fyrsti í þrjú ár til að skora yfir 20 stig þrisvar í röð Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. febrúar 2016 19:15 Martin Hermansson fer á kostum í Brooklyn. mynd/liu
Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, átti enn einn stórleikinn fyrir LIU Brooklyn í nótt þegar hann skoraði 21 stig, tók sjö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar í þriggja stiga sigri á Mount St Mary's Mountaineers, 77-74. KR-ingurinn hitti úr fimm af ellefu skotum sínum í leiknum, þar af tveimur þriggja stiga skotum og þá var hann pottþéttur á vítalínunni með níu af tíu skotum niður.Sjá einnig:Ótrúlegur leikur hjá Martin Martin varð með leiknum í nótt fyrsti leikmaðurinn hjá Svartþröstunum í Brooklyn til að skora 20 stig eða meira í þremur leikjum í röð. Sá síðasti til að afreka það var drengur að nafni C.J. Garner. Íslenski landsliðsmaðurinn hefur spilað stórvel með LIU í vetur og er að skora 15,2 stig að meðaltali í leik, taka 3,9 fráköst og gefa 4,5 stoðsendingar að meðaltali í hverjum leik. Hann hefur bætt í stigaskorun frá síðasta tímabili þegar hann var að skora 10,1 stig að meðaltali í leik og gefa 3,3 stoðsendingar, en Martin er líka að spila fimm mínútum meira í hverjum leik en í fyrra. Sigurinn í nótt var sá ellefti á tímabilinu hjá LIU. Liðið er í sjötta sæti NEC-deildarinnar með ellefu sigra og ellefu töp. Svartþrestirnir eiga aftur leik aðra nótt þegar þeir mæta Sacred Heart á útivelli í Connecticut.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira