Körfubolti

Auðvelt hjá Kanínum Arnars

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Axel Kárason skoraði sex stig í kvöld.
Axel Kárason skoraði sex stig í kvöld. vísir/stefán
Svendborg Rabbits, undir stjórn aðstoðarlandsliðsþjálfarans Arnars Guðjónssonar, vann stórsigur á Stevnsgade SuperMen, 97-80, í 24. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í kvöld.

Svenborg var níu stigum yfir í hálfleik, 50-41, og jók svo muninn jafnt og þétt þar til yfir lauk. Lokatölur, 97-80.

Íslenski landsliðsmaðurinn Axel Kárason skoraði sex stig og tók sex fráköst fyrir Svendborg en hann spilaði 29 mínútur í leiknum.

Svendborg er áfram í fjórða sæti dönsku deildarinnar eftir leikinn með 28 stig, 20 stigum á undan Stevnsgade sem er í sjöunda og næst neðsta sæti með átta stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×