Körfubolti

Jakob hafði betur gegn sínu gamla félagi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jakob Örn í leik með Borås.
Jakob Örn í leik með Borås. mynd/borås
Jakob Örn Sigurðarson mætti Hlyni Bæringssyni og öðrum fyrrum félögum sínum í Sundsvall í kvöld.

Þá náði lið Jakobs, Borås Basket, að vinna öruggan sigur á Sundsvall, 102-88.

Jakob átti sem fyrr flottan leik. Skoraði 14 stig, tók 4 fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Hlynur var mjög sterkur í liði Sundsvall með 19 stig, 6 fráköst og eina stoðsendingu.

Með sigrinum komst Borås upp að hlið Sundsvall í fjórða sæti. Bæði lið eru með 28 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×