Körfubolti

Jakob Örn í banastuði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jakob í leik með Borås.
Jakob í leik með Borås. mynd/borås
Jakob Örn Sigurðarson átti enn einn stórleikinn fyrir Borås í sænska körfuboltanum í kvöld.

Hann skoraði 19 stig, gaf 5 stoðsendingar og tók 3 fráköst er hans lið sótti gíðan útisigur, 74-98, gegn ecoÖrebro.

Borås styrkti stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar með sigrinum.

Hlynur Bæringsson lék ekki með Sundsvall Dragons er liðið lagði KFUM Nässjö, 83-72. Hlynur er lítillega meiddur og var því hvíldur í kvöld. Sundsvall er í sjötta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×