Körfubolti

Kanínurnar í banastuði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Axel Kárason.
Axel Kárason. vísir/daníel
Lífið var ljúft hjá liði Arnars Más Guðjónssonar, Svendborg Rabbits, í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Þá völtuðu Kanínurnar yfir Randers Cimbria, 114-62. Yfirburðir liðsins miklir frá upphafi.

Axel Kárason lék í tæpar 25 mínútur í kvöld og skoraði 5 stig, tók 5 fráköst og gaf 3 stoðsendingar.

Svendborg komst með sigrinum upp að hlið Naestved en þau eru bæði með 32 stig í þriðja til fjórða sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×