Ótrúleg endurkoma Clippers í sigri á Thunder | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. mars 2016 07:00
Los Angeles Clippers vann ótrúlegan sigur á OKC Thunder í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 103-98. Liðið var mest 22 stigum undir. Clippers-liðið skoraði 26 af síðustu 31 stigi leiksins og vann fimm stiga sigur eftir að vera 16 stigum undir þegar sjö mínútur og 30 sekúndur voru eftir. Mögnuð endurkoma. Chris Paul skoraði 21 stig og gaf þrettán stoðsendingar í liði Clippers og DeAndre Jordan skoraði 20 stig og tók 18 fráköst. Kevin Durant var stigahæstur Oklahoma með 30 stig auk þess sem hann tók ellefu fráköst og gaf fimm stoðsendingar en Russell Westbrook skoraði 24 stig og tók tólf fráköst. San Antonio er líkt og Golden State ósigrað á heimavelli á tímabilinu en það vann 29. heimasigurinn í röð þegar liðið lagði Detroit í nótt, 97-81. LaMarcus Aldridge átti stórleik fyrir Spurs og skoraði 23 stig auk þess sem hann tók tíu fráköst en Kawhi Leonard skoraði 27 stig, tók sex fráköst og gaf fimm stoðsendingar. San Antonio er í öðru sæti vesturdeildarinnar með 51 sigurleik og níu töp, þremur og hálfum leik á eftir meisturum Golden State. Liðið er búið að vinna sex leiki í röð. Þá fór James Harden á kostum í nótt þegar Houston Rockets vann fimm stiga heimasigur á New Orleans, 100-95. Harden skoraði hvorki fleiri né færri en 39 stig auk þess sem hann tók tólf fráköst og gaf sjö stoðsendingar.Úrslit næturinnar: Orlando Magic - Chicago Bulls 102-89 Phiadelphia 76ers - Charlotte Hornets 99-119 Boston Celtics - Portland Trail Blazers 116-93 Toronto Raptors - Utah Jazz 104-94 Houston Rockets - New Orleans Pelicans 100-95 Memphis Grizzlies - Sacramento Kings 104-98 Milwaukee Bucks - Indiana Pacers 99-104 Minnesota Timberwolves - Washington Wizards 98-104 San Antonio Spurs - Detroit Pistons 97-101 Denver Nuggets - LA Lakers 117-107 LA Clippers - OKC Thunder 103-98Staðan í deildinni.James Harden skorar 39 fyrir Houston: DeMar DeRozan og Kyle Lowry skora 61 saman fyrir Toronto:
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira