„Engin stórviðri í kortunum“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 1. mars 2016 10:03 Það er spáð hægri breytilegri átt og lítilli úrkomu í vikunni svo það ætti að viðra vel til útivistar. vísir/vilhelm
Í dag mun kólna jafnt og þétt á öllu landinu og fara skúrirnar sunnan- og vestanlands því fljótlega að bretast í él, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þá er von á norðanátt um og eftir hádegi norðan til á landinu og það nokkuð hvassa við norðurströndina. Með norðanáttinni er spáð snjókomu og því gæti ferðaveður norðan- og norðaustan orðið heldur erfitt síðdegis og í kvöld. Norðanáttin varir hins vegar ekki lengi og gengur að mestu leyti austur af landinu í fyrramálið „en skilur eftir sig hæga breytileg átt og kalt veður en úrkomulítið. Vikan lítur ágætlega út, engin stórviðri í kortunum eins og er, en þó þarf að fylgjast með lægðagangi í kringum landið um helgina.“ Veðurhorfur á landinu samkvæmt spá Veðurstofunnar:Austlæg átt, 3-10 metrar á sekúndu og él sunnan og vestan til fram yfir hádegi en snýst smám saman í norðaustan 10-18 metrar á sekúndu og fer að snjóa norðanlands. Hvassast á annesjum. Lægir á Norðurlandi í kvöld, en hvessir um landið austanvert. Norðvestan 13-20 metrar á sekúndu suðaustan- og austan til seint í kvöld og á morgun en mun hægari norðlæg átt annars staðar. Dregur úr ofankomu norðaustan til á morgun og léttir til. Kólnar í dag, og víða talsvert frost á morgun.Á fimmtudag:Austlæg eða breytileg átt, 3-8 metrar á sekúndu, en 8-13 syðst. Víða bjartviðri, en skýjað og él við suður- og suðausturströndina. Hægari og þurrt seinnipartinn. Frost 0 til 10 stig.Á föstudag:Vestlæg átt, 3-10 metrar á sekúndu. Skýjað með köflum og él um norðan- og vestanvert landið annars úrkomulítið. Hlýnar heldur, einkum vestanlands.Á laugardag:Suðlæg átt, 3-8 metrar á sekúndu og léttskýjað norðaustan til, annars skýjað með köflum en þykknar upp með slyddu og síðar rigningu vestan til um kvöldið. Frost 0 til 7 stig austantil, en hlánar vestanlands.Á sunnudag:Vestlæg átt og él vestantil en suðlægari og slydda eða snjókoma um landið austanvert fram eftir degi. Hiti um og undir frostmarki.Á mánudag:Vestlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Fleiri fréttir Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum Sjá meira