Innlent

„Engin stórviðri í kortunum“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það er spáð hægri breytilegri átt og lítilli úrkomu í vikunni svo það ætti að viðra vel til útivistar.
Það er spáð hægri breytilegri átt og lítilli úrkomu í vikunni svo það ætti að viðra vel til útivistar. vísir/vilhelm
Í dag mun kólna jafnt og þétt á öllu landinu og fara skúrirnar sunnan- og vestanlands því fljótlega að bretast í él, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Þá er von á norðanátt um og eftir hádegi norðan til á landinu og það nokkuð hvassa við norðurströndina. Með norðanáttinni er spáð snjókomu og því gæti ferðaveður norðan- og norðaustan orðið heldur erfitt síðdegis og í kvöld.

Norðanáttin varir hins vegar ekki lengi og gengur að mestu leyti austur af landinu í fyrramálið „en skilur eftir sig hæga breytileg átt og kalt veður en úrkomulítið. Vikan lítur ágætlega út, engin stórviðri í kortunum eins og er, en þó þarf að fylgjast með lægðagangi í kringum landið um helgina.“

Veðurhorfur á landinu samkvæmt spá Veðurstofunnar:

Austlæg átt, 3-10 metrar á sekúndu og él sunnan og vestan til fram yfir hádegi en snýst smám saman í norðaustan 10-18 metrar á sekúndu og fer að snjóa norðanlands. Hvassast á annesjum. Lægir á Norðurlandi í kvöld, en hvessir um landið austanvert. Norðvestan 13-20 metrar á sekúndu suðaustan- og austan til seint í kvöld og á morgun en mun hægari norðlæg átt annars staðar. Dregur úr ofankomu norðaustan til á morgun og léttir til. Kólnar í dag, og víða talsvert frost á morgun.

Á fimmtudag:

Austlæg eða breytileg átt, 3-8 metrar á sekúndu, en 8-13 syðst. Víða bjartviðri, en skýjað og él við suður- og suðausturströndina. Hægari og þurrt seinnipartinn. Frost 0 til 10 stig.

Á föstudag:

Vestlæg átt, 3-10 metrar á sekúndu. Skýjað með köflum og él um norðan- og vestanvert landið annars úrkomulítið. Hlýnar heldur, einkum vestanlands.

Á laugardag:

Suðlæg átt, 3-8 metrar á sekúndu og léttskýjað norðaustan til, annars skýjað með köflum en þykknar upp með slyddu og síðar rigningu vestan til um kvöldið. Frost 0 til 7 stig austantil, en hlánar vestanlands.

Á sunnudag:

Vestlæg átt og él vestantil en suðlægari og slydda eða snjókoma um landið austanvert fram eftir degi. Hiti um og undir frostmarki.

Á mánudag:

Vestlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×